Knattspyrnudeild Fjölnis hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ósmekklegrar twitter-færslu sem stuðningsmannaklúbbur félagsins, Kári, skrifaði um Sigga Dúllu liðsstjóra Stjörnunnar í gær.
Twitter-færslan um Sigga var birt fyrir leik Fjölnismanna og Stjörnumanna í Pepsi-deildinni í gærkvöld en henni var síðan eytt klukkutíma síðar en í færslunni var vísa um liðsstjóra Stjörnunnar og var hún vægast sagt ósmekkleg.
Yfirlýsing Fjölnis;
„Stuðningsmannaklúbburinn Kári er líflegur og skemmtilegur hópur sem styður vel við bakið á meistaraflokkum karla og kvenna hjá Fjölni. Káramenn eiga það til að vera ögrandi en oftast eru þeir fyrst og fremst skemmtilegir og búa til góða stemningu á leikjum Fjölnis. Svona stuðningsfélög eiga það til að dansa á línunni en í gær fór Kári langt yfir strikið.
Sú vísa sem Káramenn settu á Twitter í gær um Sigga Dúllu var einkar ósmekkleg og á ekkert skylt við þá umgjörð sem á að vera í kringum í íþróttir og á auðvitað hvergi heima.
Káramenn hafa beðið Sigga Dúllu afsökunar á hegðun sinni. Fyrir hönd Fjölnis vil ég biðja hann afsökunar sömuleiðis.
Forráðamenn Fjölnis munu í samvinnu við stuðningsmenn leitast við að gera umgjörðina líflega og skemmtilega og koma í veg fyrir að svona lagað endurtaki sig. Við viljum hafa jákvæða fjölskyldustemningu á öllum leikjum Fjölnis.“
F.h. knattspyrnudeildar Fjölnis
Árni Hermannsson, formaður