Fékk gat í gegnum vörina

Brynjar Gauti Guðjónsson og Þórir Guðjónsson eigast við.
Brynjar Gauti Guðjónsson og Þórir Guðjónsson eigast við. mbl.is/Golli

Alls þurfti að sauma sextán spor í Brynjar Gauta Guðjónsson, varnarmann Stjörnunnar, eftir 2:1-sigur Garðbæinga á KA-mönnum í Pepsi-deild karla í knattspyrnu á sunnudagskvöld.

Brynjar Gauti lenti í samstuði við Elfar Árna Aðalsteinsson í liði KA og fékk skurð á vörina. Það náðist að stöðva blæðinguna og hann kláraði leikinn, en var sendur beint á sjúkrahús að honum loknum.

„Ég fékk gat í gegnum vörina og það þurfti að sauma tíu spor utan á og sex innan á til að loka því,“ sagði Brynjar Gauti við fotbolti.net í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert