Fjórir leikir fóru fram í annarri umferð Borgunarbikars karla í knattspyrnu í dag. Leiknir Fáskrúðsfirði hafði betur gegn Fjarðabyggð, Haukar lögðu Reyni Sandgerði að velli, Völsungur bar sigurorð af Dalvík/Reyni og loks vann Grótta sigur gegn KFG.
Þar með lauk 2. umferðinni og ljóst hvaða 20 lið fara í 32ja liða úrslit ásamt liðunum tólf úr Pepsi-deild karla. Þau verða leikin um miðjan maí.
Fjarðabyggð - Leiknir F., 1:2
Anton Bragi Jónsson 38. - Jesus Suárez 37., Javier Del Cueto 66.
Reynir S. - Haukar, 0:4
Björgvin Stefánsson 13., Haukur Ásberg Hilmarsson 71., Daníel Snorri Guðlaugsson 75., Ísak Jónsson 88.
Dalvík/Reynir - Völsungur, 0:2
Sæþór Olgeirsson 8., Guðmundur Óli Steingrímsson 90.
KFG - Grótta, 0:3
Aleksandar Alexander Kostic 19., Ásgrímur Gunnarsson 72., Agnar Guðjónsson 90.