Grindavík samdi við Williamson

Grindvíkingar hafa fengið kærkominn liðsauka.
Grindvíkingar hafa fengið kærkominn liðsauka. mbl.is/Ómar

Skoski knattspyrnumaðurinn Ian Williamson skrifaði rétt áðan undir samning við úrvalsdeildarlið Grindavíkur um að spila með því út þetta keppnistímabil.

Williamson er 24 ára gamall miðjumaður og hefur leikið undanfarin þrjú ár með Raith Rovers en spilaði áður með Dunfermline í þrjú ár. Hann á að baki 96 leiki í tveimur efstu deildunum og hefur skorað í þeim 10 mörk.

Þetta er kærkominn liðsauki fyrir Grindavíkurliðið sem situr á botni Pepsi-deildarinnar og tapaði 0:1 á heimavelli fyrir FH í gærkvöld. Liðið hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum að undanförnu og átt erfitt með að fullmanna leikmannahóp sinn síðustu vikurnar.

„Við höfum verið að athuga með fleiri möguleika en það er því miður ekkert fleira uppi á borðinu hjá okkur eins og er. Við erum í miklum vandræðum með framherjana okkar því Tomi Ameobi og Pape Faye eru báðir meiddir og óvíst hvenær þeir geta spilað, auk þess sem Jósef Kristinn Jósefsson leikur væntanlega ekkert meira með okkur í ár,“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari Grindvíkinga, við mbl.is.

Þess má geta að það var fyrrverandi lærisveinn Guðjóns hjá enska liðinu Barnsley, Craig Ireland, sem kom Grindvíkingum í samband við Williamson en Ireland er nú þjálfari hjá Raith Rovers.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert