Fólk hugsar miklu betur um húðina eftir veiruna

Karin Kristjana Hindborg eigandi Nola.
Karin Kristjana Hindborg eigandi Nola.

Karin Kristjana Hindborg, eigandi snyrtivöruverslunarinnar Nola, segir að húðrútína fólks hafi breyst vegna veirunnar og nú hugi fólk betur að húðinni. Hún notar dermaroller helst einu sinni í viku til að fríska upp á húðina. 

Hvað finnst þér einkenna förðunartískuna vorið 2021?

„Hin ótrúlega „dewy-húð“ og áferðin minnir helst á seli. Grímuskylda út um allan heim hefur áhrif á förðunartrendin og fyrir utan húðina er aðaláherslan á augun, vera með sterkan liner, grafískar línur eða sterka liti,“ segir hún.

Hefur veiran kennt fólki að nota öðruvísi snyrtivörur en áður?

„Já, mér finnst mest áberandi að flestir eru að hugsa betur um húðina sína hvort sem það er vegna þess að fólk gefur sér meiri tíma í „self-care“ eða vegna þess að „maskne“ er að verða algengara. Exem og bólur undan grímunni,“ segir Karin.

Hvað finnst þér fólk leita helst eftir að eignast þegar kemur að snyrtivörum?

„Á þessum Covid-tíma hefur verið meira um húðvörur, serum og maskar fara vel og fólk er yfirhöfuð að gefa sér meiri tíma í húðrútínuna.“

Hvernig hugsar þú um húðina?

„Ég hef alltaf hugsað mjög vel um húðina, þríf og næri húðina vel kvölds og morgna með mismunandi vörum og nota húðvörn daglega (spf). Ég hef aldrei reykt og var mjög ung þegar ég fattaði að það er ekki smart að bera á sig babyolíu í sólbaði, það kæmi bara í bakið á mér seinna.“

Hvernig er morgunrútínan þín?

„Ég þríf húðina með köldu vatni, nota rakasprey, serum, rakakrem og húðvörn. Svo nota ég yfirleitt litað dagkrem (Skin Tint frá ILIA), hyljara, greiði í gegnum augabrúnir og set á mig maskara og sólarpúður og mögulega smá ljóma á kinnbein.“

Hvað gerir þú til þess líta betur út?

„Mér finnst ég alltaf líta mun betur út ef ég er úthvíld og svo er nauðsynlegt að nota Glow Drops (Pestle & Mortar) út í rakakremið, þá fæ ég húðlit og ferskara yfirbragð. Svo er gott að taka góða kvöldstund í að setja á sig maska og nota A-vítamín krem. Ef ég er að fara eitthvað spari reyni ég að hvítta tennurnar.“

Karin hefur notað Dermaroller í nokkur ár. Hún segir það vera góða leið til þess að hressa upp á útlitið. En hvað er dermaroller?

„Dermaroller eru pínulitlar nálar sem þú rúllar á andlitið einu sinni í viku. Með þessu ertu að senda húðinni skilaboð um að hún sé með sár og hún fer á fullt að mynda kollagen og gera við. Húðin er mjög opin og móttækileg eftir rúllun og þá er frábært að dæla í húðina góðu rakaserumi, best ef það inniheldur hýalúrónsýru og/eða peptíð og gott rakakrem. Svo þarf að skipta um rúllu á ca. 3 mánaða fresti því nálarnar verða bitlausar með tímanum,“ segir hún og bætir við:

„Ég keypti fyrstu rúlluna mína fyrir nokkrum árum. Ég nota hana ekki alveg einu sinni í viku en gríp reglulega í hana. Þá passa ég að vera með hreina húð og er búin að spritta dermarúlluna og rúlla laust yfir allt andlitið, mynda eins konar stjörnu.“

Hvað finnst þér dermaroller gera fyrir andlitið?

„Mér finnst húðin verða fyllri og húðholur ekki eins sjáanlegar. Þetta er ofsalega gott fyrir ör, slit og slappa húð.“

Gefur þú þér alltaf tíma til að farða þig fallega?

„Ég reyni að gefa mér smá tíma ef ég er að fara eitthvað fínt. Þá finnst mér gaman að gera húðina svolítið ljómandi, nota stök augnhár og er líklegri til að skipta varasalvanum út fyrir gloss.“

Hvernig farðar þú þig þegar þú hefur lítinn tíma?

„Þegar ég hef lítinn tíma þá geri ég helst þrennt: ILIA Skin Tint, hyjari og glært gel á augabrúnir. Þá erum við kannski að tala um max fimm mínútur. Húð og augabrúnir eru möst hjá mér.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál