Þau Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ísland, og Eliza Reid, forsetafrú, tóku á móti Viktoríu krónprinsessu Svíþjóðar á Bessastöðum í dag. Forsetahjónin voru prúðbúin þegar konunglegi gesturinn kom í heimsókn. Viktoría er stödd hér á landi í tengslum við Arctic Circle-ráðstefnuna.
Eliza sem hefur ekki verið feimin við að klæðast litum né buxnadrögtum að undaförnu var í appelsínugulri buxnadragt með víðum skálmum. Krónprinsessan var hins vegar í síðu silkipilsi með munstri og blússu í stíl. Munstraða dressið er frá sænska merkinu Rodebjer.