Heitustu skórnir í dag

Anna Wintour hefur samþykkt snákaskinnsmynstruðu skóna.
Anna Wintour hefur samþykkt snákaskinnsmynstruðu skóna. AFP

Snákaskinnsmynstur komst nýlega í tísku og eru tískuspekúlantar sammála um að heitustu skórnir í dag séu skór með snákaskinnsmynstri. Þegar sjálf tískudrottningin Anna Wintour hefur sést í slíkum skóm má fólk hætta að velta því fyrir sér hvort skórnir eru flottir eða ekki. 

Skór með litlum hæl, ökklastígvél eða há stígvél, það skiptir ekki máli hvernig skórnir eru svo lengi sem þeir eru með snákaskinnsmynstri. Hefðbundnir gráir og svartir tónar eru vinsælastir en svo eru þeir til sem taka tískuna skrefinu lengra og eru í mynstrinu í lit. 

Anna Wintour sást á tískuvikunni í New York í stígvélum með mynstrinu en í sömu viku var einn frægasti tískubloggari í heimi mynduð í svipuðum stígvélum en bara bláum. 

Tískubloggarinn Aimee Song í bláum stígvélum með snákaskinnsmynstri.
Tískubloggarinn Aimee Song í bláum stígvélum með snákaskinnsmynstri. mbl.is/AFP
Anna Wintour ritstjóri Vouge er komin á snákaskinnsvagninn.
Anna Wintour ritstjóri Vouge er komin á snákaskinnsvagninn. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál