Stórstjörnur, tískubloggarar og aðrir áhrifavaldar þramma nú götur New York á tískuvikunni í stóra eplinu sem lýkur nú í vikunni. Tískan er ekki síður áhugaverð úti á götu en á tískupöllunum þar sem fólk lætur ljós sitt skína.
Það má varla sjá manneskju í svörtu frá toppi til táar þessa viku í febrúar í New York. Allt er leyfilegt en enn má sjá buxnadragtir í hinum ýmsu litum. Konur klæðast ekki bara drögtum í einum litatón heldur jafnvel skóm, sokkabuxum og yfirhöfn í sama litnum.
Ljósmyndarar AFP voru í New York og mynduðu stemmninguna.