Stórglæsileg en í fokdýrum kjólum

Strandkjóll Meghan kostaði aðeins meira en það sem hin venjulega …
Strandkjóll Meghan kostaði aðeins meira en það sem hin venjulega kona eyðir í kjól sem hún klæðist á ströndinni. AFP

Fataskápur Meghan á ferðalagi hennar og Harry Bretaprins hefur vakið mikla athygli, ekki síst fyrir hversu mikið hann kostar. Þrátt fyrir að nokkrar flíkur hennar séu á viðráðanlegu verði eru sumar á við útborguð mánaðarlaun fólks. 

Í dag, föstudag, klæddist Meghan einstaklega fallegum síðum kjól á ströndinni í Ástralíu. Kjóllinn sem er frá merkinu Martin Grant er fáanlegur á vefversluninni Moda Operandi og kostar þar 1.222 evrur eða um 165 þúsund íslenskar krónur. 

Harry og Meghan.
Harry og Meghan. AFP

Meghan klæddist líka bláum kjól frá merkinu Roksanda. Kjóllinn fæst í netverslun Harrods en er ekki á allra færi þar sem hann kostar 1.299 pund eða um 200 þúsund íslenskar krónur.

Þrátt fyrir verðmiðana þá verður það ekki tekið af Meghan að hún tók sig vel út í kjólunum. Nú er bara að vona að hún noti kjólana oft og mikið. 

Meghan í bláa kjólnum frá Roksanda.
Meghan í bláa kjólnum frá Roksanda. AFP



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál