Á sama tíma og söngkonan Lady Gaga staðfesti að hún væri trúlofuð bárust fréttir af því að söngkonan Ariana Grande hefði skilað fyrrverandi unnusta sínum, Pete Davidson, trúlofunarhringnum sem hann gaf henni.
Grande var dugleg að sýna fallegan hringinn sem People segir að kostað hafi 93 þúsund dollara eða tæpar 11 milljónir íslenskra króna. Einhverjum gæti fundist það mikið en það er ekki neitt miðað við hringinn sem umboðsmaðurinn Christian Carino gaf söngkonunni Lady Gaga.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað hringur Gaga kostaði en E! fékk sérfræðinginn til að greina hringinn. Á miðjum demantshringnum er bleikur sex til sjö karata safírsteinn. Finnst sérfræðingnum líklegt að safírsteininn sé af einn af sjaldgæfustu tegund safírsteina í heiminum. Ef þetta er rétt metið hjá honum telur hann hringinn auðveldlega geta kostað 300 til 400 þúsund dollara eða á bilinu 35 til 47 milljónir íslenskra króna.