Hvíti liturinn er alltaf vinsæll á sumrin og nú þegar styttist í sumarið er um að gera að dusta rykið af hvítu fötunum. Fatahönnuðurinn og fína kryddið Victoria Beckham er að minnsta kosti búin að draga fram hvítu fötin og komin í sumarskap.
Sumarið er komið í hinni sólríku Kaliforníu þar sem Beckham er stödd og því við hæfi fyrir hana að klæðast hvítu. Á mánudaginn fagnaði hún því að vinkona hennar Eva Longoria væri komin með stjörnu á stéttina í Hollywood í hvítri skyrtu og síðu hvítu pilsi. Fatnaðurinn kom að sjálfsögðu frá hennar eigin fatamerki, Victoria Beckham.
Um kvöldið fagnaði Beckham afmæli sínu með fjölskyldu sinni og skipti hún um föt fyrir tilefnið en sagði þó ekki skilið við hvíta litinn. Var Beckham, sem er orðin 44 ára, flott í víðri skyrtu og hvítum útvíðum buxum.