Það er komið vor í Lundúnum og það sást vel á fatastíl Meghan Markle þegar hún sinnti opinberum skyldum með Harry Bretaprins í dag, miðvikudag. Harry var líka vorlegur í hvítri skyrtu og ljósum jakka.
Meghan var glæsileg í ljósum kjól með svörtum röndum og tölum frá Altuzarra en kjóllinn kostar 1.995 dollara í Barneys eða rétt tæpar 200 þúsund krónur íslenskar. Kjóllinn er að sjálfsögðu að verða uppseldur og bara eftir í einni stærð.
Meghan var svart hvít þrátt fyrir að vera vorleg og var með jakka frá ástralska merkinu Camilla and Mark yfir öxlunum þegar hún mætti. Skórnir voru líka svartir frá Tamara Mellon. Til þess að toppa klæðnaðinn var hún með hvíta og svarta tösku frá Oroton.