MOSCHINO hannar fyrir H&M

Næsta hönnuðarsamstarf H&M er við þekkta ítalska vörumerkið MOSCHINO. Línan verður fáanleg um allan heim 8. nóvember. H&M fór óvenjulega leið ti að tilkynna þetta samstarf en það var gert á Instagram live. 

Tilkynningunni var varpað á stafræna skjái í partíi sem MOSCHINO heldur árlega á tónlistarhátíðinni Coachella í Kaliforníu. Stóru fréttirnar komu gestum á óvart er þær voru tilkynntar á miðnætti.

Jeremy Scott og Gigi Hadid klæddust fyrstu flíkunum úr MOSCHINO [tv] H&M-fatalínunni, sem einkennist af þeim gáska og húmor sem hefur gert fatamerkið eitt það vinsælasta í tískuheiminum. Jeremy Scott hannaði H&M MOSCHINO-fatalínuna sem er bæði fyrir dömur og herra en einnig má finna þar mikið úrval fylgihluta, sem munu koma skemmtilega á óvart.

„Ég er ótrúlega spenntur fyrir MOSCHINO [tv] H&M. Ég hef haft það að ævistarfi að tengjast fólki í gegnum tísku og með þessu samstarfi mun ég ná til fleiri en nokkurn tíma áður,“ segir Jeremy Scott, listrænn stjórnandi hjá MOSCHINO.

„MOSCHINO [tv] H&M er hið fullkomna samstarf fyrir tískuheiminn í dag, þar sem línan blandar saman dægurmenningu, vörumerkjum og glæsileika. Jeremy Scott er stórkostlegur – hann kann að gera tísku skemmtilega og tengjast aðdáendum sínum um allan heim,“ segir Ann-Sofie Johansson, listrænn stjórnandi hjá H&M.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál