Hvíti liturinn tekur yfir

Hvítur litur táknar hreinleika og nýtt upphaf. Hann hefur í …
Hvítur litur táknar hreinleika og nýtt upphaf. Hann hefur í gegnum árin verið vinsæll og haldið sínum sessi. mbl.is/skjáskot.

Á þessum árstíma þegar harðasti tími vetrarins er bráðum liðinn og tími vorhreingerninga fer í hönd er gott að muna hvað allt er miklu auðveldara þegar minna dót er í húsinu.  Að taka til í fataskápnum er alltaf góð hugmynd líka. Að skipta út dökkum flíkum fyrir þær ljósu.

Bara það að þrífa gluggana að utan og minnka skrautið í stofunni getur hleypt birtu inn í lífið. Að mati margra er hvíti liturinn tákn hreinleikans, upphafið að einhverju nýju, litur einfaldleikans og náðarinnar. Sumir segja að ljósir litir séu lúxus.

Þetta er árstíminn þar sem við byrjum að hreinsa út, …
Þetta er árstíminn þar sem við byrjum að hreinsa út, hvort heldur sem er á heimilinu, í matarræðinu eða í fataskápnum. mbl.is/skjáskot.
Mbl.is/skjáskot.

Fyrir þá sem ætla að mála heima hjá sér á þessum árstíma eða eru að velja sér flísar inn á bað eða inn í eldhús er gott að rifja upp hversu fallegt er að hafa allt í hvítu. 

Það sama má segja um það sem við klæðumst, þegar við byrjum á þessum árstíma að bæta hvítu inn í fataskápinn, þá verður skemmtilegt að prófa hvítan bol með gráu eða svörtu fötunum. Að klæðast ljósum sokkabuxum og ljósum skóm við svarta kjólinn. Það má gera þetta í skrefum.

Í vor er hins vegar gaman að skoða vörumerki sem bjóða upp á fallegan alhvítan fatnað. Halston Heritage-merkið er með nokkrar fallegar flíkur á boðstólum í þessum anda á næstunni.

Halston Heritage býður upp á fallegan fatnað í sumar í …
Halston Heritage býður upp á fallegan fatnað í sumar í hvítu. Takið eftir því hvað er fallegt að vera með eina litla rauða tösku við hvítt. Halston Heritage.

Einnig má skoða hvernig hvítur litur getur orðið fallegur með förðun. Þegar við notum hvítan til að leggja áherslu á svæði líkt og kinnbein og enni. Möguleikarnir eru endalausir þegar kemur að hvíta litnum.

Hvítt getur verið listrænt og fallegt í förðun.
Hvítt getur verið listrænt og fallegt í förðun. mbl.is/skjáskot.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál