Snjóbrettastelpan Chloe Kim vann gullverðlaun á Vetrarólympíuleikunum í Suður-Kóreu á dögunum. Kim var að vonum ánægð með verðlaunin en vildi þó ekki gráta af gleði. Ástæðan? Jú, hún hafði áhyggjur af augnmálningunni.
Kim segist hafa haft mikið fyrir því að að halda aftur af tárunum. „Ég get ekki grátið núna, ég get ekki gert það, ég vandaði mig svo mikið með augnblýantinn,“ sagðist Kim hafa hugsað þegar hún tók við verðlaununum samkvæmt Independent.
Farðinn hefur verið að stríða fleirum í Pyeongchang en Amy Williams, ólympíumeistari og íþróttafréttakona á BBC Sport, óskaði eftir hugmyndum að farða fyrir för sína til Pyeongchang þar sem vatnskenndur farði væri að frjósa á fréttafólki á leikunum, en mikið frost hefur verið í Pyeongchang.