Límband og aðahaldnærbuxur undir kjólinn

Chrissy Teigen á límbandi og aðahaldsnærbuxum margt að þakka.
Chrissy Teigen á límbandi og aðahaldsnærbuxum margt að þakka. AFP

Fyrirsætan Chrissy Teigen geislaði í svörtum glitrandi kjól með hárri klauf á dögunum. Það fór mikil vinna í að klæða Teigen í kjólinn en stílisti fyrirsætunnar beitti ýmsum brögðum til þess að hún liti sem best út. 

Það voru engin venjuleg nærföt sem stílistinn Monica Rose færði Teigen. Blúndunærbuxur fengu að víkja fyrir aðhaldsnærbuxum. Nærbuxurnar komu Teigen vel enda langt gengin með sitt annað barn en aðhaldsnærbuxur nýtast þó öllum. Nærbuxurnar eru kannski ekki þær þægilegustu en móta líkamann og ýta því inn sem þarf að fela. 

Fáar konur sleppa brjóstahaldara en það gerði Teigen enda kjóllinn fleginn og slapp hún auk þess við allar brjóstahaldaralínur. Eitthvað þurfti þó að gera til þess að halda brjóstunum á sínum stað og þá var límband notað en Teigen lýsti því sem galdrinum samkvæmt People

Það er öllum brögðum beitt til þess að líta betur …
Það er öllum brögðum beitt til þess að líta betur út. skjáskot/Snapchat
Chrissy Teigen.
Chrissy Teigen. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál