Á baðsloppnum á rauða dreglinum

Rita Ora í óhefðbundnum klæðnaði á rauða dreglinum.
Rita Ora í óhefðbundnum klæðnaði á rauða dreglinum. mbl.is/AFP

Það leit út fyrir að breska söngkonan Rita Ora hefði drifið sig úr sturtunni og beint á rauða dregilinn á evrópsku tónlistarverðlaunahátíð MTV um helgina en Ora mætti á baðsloppnum. 

Við baðsloppinn var hún að sjálfsögðu með handklæði á höfðinu. Á einhvern ótrúlegan hátt náði Ora að láta klæðnaðinn virka og gerðu demantshálsmen og eyrnalokkar sitt til þess að upphefja glamúrinn. Pinnahælarnir settu síðan punktinn yfir i-ið. 

Rita Ora í baðsloppnum góða.
Rita Ora í baðsloppnum góða. mbl.is/AFP

Ora stal þó ekki baðsloppnum af hótelherbergi sínu heldur var sloppurinn úr vor- og sumarlínu Palomo Spain. 

Nicolas woke up late in the afternoon 🌹 Happy mid-week !

A post shared by Alejandro Gómez Palomo (@palomospain) on Sep 20, 2017 at 6:17am PDT

Þetta var ekki eini baðsloppurinn sem Ora sem var kynnir á hátíðinni klæddist þetta kvöldið. Hún flutti lag í öðrum og styttri baðslopp.

Rita Ora kom fram í styttri baðslopp.
Rita Ora kom fram í styttri baðslopp. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál