Stjarnan Blake Lively skein heldur betur skært þegar hún mætti í gulu frá toppi til táar í sjónvarpsþáttinn Good Morning America á mánudag.
Buxurnar og peysan eru frá Biran Maxwell. Lively tók útlitið alla leið og klæddist gullituðum skóm við frá Charlotte Olympia.
Leikkonan er að kynna nýjustu kvikmynd sína og er bókuð á hinum ýmsu stöðum. Það þýðir ekki fyrir hana að mæta í sömu fötunum í mismunandi viðtöl og samkvæmt Elle sást leikkonan í sjö mismunandi dressum þennan daginn.
Þrátt fyrir að flíkurnar hafi verið hverri annarri fallegri er spurning hvort karlkyns leikari í hennar stöðu hefði skipt svo ört um föt?