Mættu allar fyrir tilviljun í eins kjólum

Konurnar sex allar í eins kjól.
Konurnar sex allar í eins kjól. skjáskot/Facebook

Miðað við mynd sem Debbie Speranza deildi á Facebook mætti halda að hún og fimm aðrar konur hefðu verið brúðarmeyjar í brúðkaupi enda allar klæddar í eins kjóla. Tilviljun ein réð því að sex konur í Sidney mættu í eins kjólum í brúðkaup.

Kjóllinn sem er frá Forever New og kostar rúmlega 13 þúsund íslenskar krónur. Það er nokkuð ljóst að brúðhjónin umkringja sig fólki með sama fatasmekkin. 

„Pælið í líkunum,“ skrifaði Speranza á Facebook en hún deildi myndinni á Facebook-síðu Forever New og sagði í gríni að hún ætti skilið gjafakort fyrir alla auglýsinguna enda hafa yfir 45 þúsund manns líkað við myndina og yfir tíu þúsund skrifað athugasemd við hana. 

Speranza sagði í samtali við The Telegraph að fólk væri að spyrja hana hvort að um samantekið ráð hafi verið að ræða. Það hafi ekki verið hægt enda þekkti hún aðeins eina af hinum fimm konum sem mættu í eins kjól og hún. Þrjár þeirra tengdust brúðgumanum og þrjár tengdust brúðinni. 

Er þetta hinni eini sanni veislukjóll?
Er þetta hinni eini sanni veislukjóll? ljósmynd/Forever New
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál