Í fullkomnum sumarsíðkjól

Melania Trump klæddi sig í sumarlegan kjól á meðan Donald …
Melania Trump klæddi sig í sumarlegan kjól á meðan Donald Trump var í jakkafötum eins og vanalega. mbl.is/AFP

Það lítur út fyrir að Melania Trump sé komin í sumargírinn, að minnsta kosti klæddist hún fallegum gulum síðkjól þegar forsætisráðherra Indlands, Narendra Modi, heimsótti Trump-hjónin í Hvíta húsið. 

Forsetafrúin sem á það til að velja föt sem eru í stífari kantinum minnti heldur betur á það að sumarið er komið. Kjóllinn er léttur, gulur með blómamynstri frá Emilio Pucci og kostar hann tæpar 290 þúsund krónur

Þykk belti eru að verða hluti af einkennisstíl frú Trump og hefur beltið eflaust heillað hana við kjólinn en á kjólnum er áfast svart belti með sama blómamynstrinu og er á gula efninu. 

Melania Trump vakti athygli í gula kjólnum.
Melania Trump vakti athygli í gula kjólnum. mbl.is/AFP
Melania og Donald Trump.
Melania og Donald Trump. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál