Balenciaga-taska eða Ikea-poki?

Taskan er mjög lík Ikea-pokanum.
Taskan er mjög lík Ikea-pokanum. skjáskot/Barnys.com

Tískuhúsið Balenciaga hefur sett á markað stóra tösku sem hefur vakið mikla athygli að undanförnu. Taskan þykir mjög lík bláu Ikea-pokunum sem svo margir eiga. En liturinn, stærðin og hönnunin er ansi lík. 

Ikea pokinn virðist vera í tísku.
Ikea pokinn virðist vera í tísku. skjáskot/Ikea

Verðmunurinn á milli töskunnar og pokans er gífurlegur en á Íslandi kostar Ikea-pokinn 95 krónur en Balenciaga-taskan kostar um 235.000 íslenskra króna. Munurinn liggur þó ekki einungis í verðmuninum. Ikea-pokinn er búinn til úr plasti á meðan Balenciaga-taskan er gerð úr glansandi leðri.


 

skjáskot/Barneys.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál