Hef komið heim eftir erfiða daga og öskurgrenjað á gólfinu

Tobba Marinósdóttir er gestur Sölva Tryggvasonar.
Tobba Marinósdóttir er gestur Sölva Tryggvasonar.

Þorbjörg Alda Birkis Marínósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marínós, er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Tobba segir í þættinum frá árunum þegar hún var blaðamaður undir stjórn Eiríks Jónssonar og Mikaels Torfasonar.

„Það fyrsta sem Eiríkur Jónsson kenndi mér var að ef ég væri hrædd við að taka símann ætti ég að vinna við eitthvað annað. Maður finnur það hjá yngri blaðamönnum að þeim finnst erfiðara að hringja eftir að samfélagsmiðlarnir komu. Fyrsti dagurinn minn í starfi blaðamanns var þannig að ritstjórinn og aðstoðarritstjórinn stóðu yfir mér og hlustuðu á mig taka símann. Þetta voru Mikael Torfason og Eiríkur Jónsson og þeir voru ekki að biðja um um einföldustu símtölin. Ég var nýkomin úr fjölmiðlafræði frá Bretlandi og svitnaði bara út í eitt, en þetta var góður skóli. Mikael hefur líklega sagt þér frá því þegar hann kom í þáttinn hjá þér að það voru hafnarboltakylfur undir borðum og það var oft skrautlegt að vinna á DV á þessum tíma. Alls konar fólk í misjöfnu ástandi að koma inn í húsið og DV var oft samnefnari fyrir fólk sem var ósátt við fjölmiðla almennt.“ 

Tobba segir að oft hafi líka verið mikið álag á fréttamönnum DV og lítið um frí, sem endaði á skrautlegan hátt í einu tilviki. 

„Svo man einu sinni þegar ég og forveri minn í starfi á DV, Lilja Katrín vinkona mín fengum ekki frí um verslunarmannahelgi og enduðum á einhverjum hræðilegum hamborgarastað og pöntuðum okkur svo mikið af „Frozen Margaritas“ og við vorum orðnar svo fullar í hádeginu að Eiríkur Jónsson þurfti að koma að sækja okkur aftur í vinnuna. Hann var frekar ósáttur, en við vildum sanna fyrir honum að hann hefði betur gefið okkur frí.“

Tobba segir að það hafi verið nauðsynlegt að breyta aðeins til þegar hún tók við sem ritstjóri DV. Meðal annars að banna fólk úr kommentakerfum og fleira í þeim dúr. Eðli málsins samkvæmt fylgi þessari tegund af blaðamennsku oft alls kyns hlutir, en hún segist finna það að fólk sé alla jafna jákvætt út í DV. 

„Fréttastjórinn okkar, Erla Hlyns, hefur oftar en einu sinni unnið mál fyrir mannréttindadómstól Evrópu og hún er mjög vönduð og grjóthörð, þannig að henni fylgir viss gæðastimpill. Og starfsfólkið mitt á DV er ótrúlegt. Ég sit stundum þarna og dáist að þeim. Þau slást oft um hver á að taka erfið símtöl og eru bara ótrúlega vönduð í sínum störfum. Það er ítrekað fólk að hringja í okkur sem ætti að hringja í lögregluna eða lögfræðinga og við erum oft að eiga við fólk í gífurlegri geðshræringu og það er oft bara mjög erfitt. Eitt það fyrsta sem ég gerði þegar ég tók við sem ritstjóri var að biðja um að okkur yrði útvegaður sálfræðingur. Það er oft gengið mikið á blaðamennina, sérstaklega í þessum erfiðustu málum, þar sem fólk hefur mikla þörf fyrir að láta heyra í sér. Það er grátandi fólk í símanum, stundum brún umslög sem koma heim til manns og það kemur meira að segja fyrir að það sé fólk komið heim til blaðamanna út af einhverjum málum," segir Tobba, sem segir það koma fyrir að hún taki vinnuna inn á sig. 

„Ég hef alveg komið heim til mín eftir erfiðustu dagana og sest á gólfið og öskurgrenjað yfir einhverjum viðbjóði og erfiðum málum. Ég á ekki gott með að ýta hlutum frá mér og gleyma þeim, heldur hef ég tilhneigingu til að fá áráttukenndar hugsanir um hryllinginn. Ég ætlaði á tímabili að sækja um í lögreglunni, en það var einmitt þetta sem ég hefði líklega ekki höndlað við það starf. Eftir að ég eignaðist börn er ég líka ennþá meðvitaðri um hvað lífið getur verið viðkvæmt og dýrmætt.“

Þú getur hlustað á hlaðvarpsvef mbl.is. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál