Meghan Markle mætti óvænt á bresku tískuverðlaunin, British fashion Awards, að veita tískuhönnuðinum Claire Waight Keller verðlaun. Keller sem starfar fyrir Givenchy hlaut viðurkenningu fyrir störf sín sem besti fatahönnuður á sviði kventískunnar í Bretlandi á þessu ári.
Keller gerði einmitt brúðarkjól hertogaynjunnar fyrir brúðkaupið í maí. Markle mætti í klassískum svörtum síðkjól sem Keller hannaði við verðlaunaafhendinguna. Kjól í anda Audrey Hepburn. Hún hélt um magann sinn og virtist geisla af gleði og hamingju.
Það sem vakti athygli á bresku hönnunarverðlaununum að þessu sinni var fjölbreytileiki í fatavali gesta. Síðkjólar voru áberandi og alls konar litir og form vinsælir. Axlapúðar voru vinsælir og íburðarmiklir kjólar.
Það er greinilega margt í tísku um þessar mundir. Glæsileikinn sést betur á eftirfarandi myndum.
Fyrirsætan Alek Wek í glæsilegum kjól á Britsh Fashion Awards.
AFP
Fyrirsætan Amelia Windsor mætti í rauðum síðkjól.
AFP
Kendall Jenner mætti í kjól sem huldi lítið af líkamanum á verðlaunaafhendinguna.
AFP
Fyrirsætan Caroline Winberg í litríkum kjól.
DANIEL LEAL-OLIVAS
Laura Bailey mætti í kjól sem minnti á tímabilið upp úr aldamótum þarsíðustu.
AFP
Rosie Huntington Whiteley er alltaf fallega klædd.
AFP
Jordan Dunn í svörtu.
AFP
Paloma Faith í bleikum prinsessukjól.
AFP
Victoria Beckham er alltaf vel til fara.
AFP
Ítalski fatahönnuðurinn Alessandro Michele klæddi sig upp á fyrir viðburðinn.
AFP
Fyrirsætan Josephine Skriver-Karlsen í hvítu frá toppi til táar.
AFP
Fyrirsætan Fran Summers valdi rauðan síðkjól að þessu sinni.
AFP
Martha Hunt í flottum kjól á rauða dreglinum.
AFP
Eva Herzigova geislaði á viðburðinum.
AFP
Cindy Crawford ásamt eiginmanni sínum Rande Gerber og börnum, Kaia Jordan Gerber og Presley Gerber.
AFP