Þorði varla að horfa á leikinn

Jón Daði Böðvarsson og María Ósk Skúladóttir hafa verið kærustupar …
Jón Daði Böðvarsson og María Ósk Skúladóttir hafa verið kærustupar í sex ár.

María Ósk Skúladóttir er trúlofuð Jóni Daða Böðvarssyni, liðsmanni íslenska landsliðsins í fótbolta. María Ósk er 24 ára og stundar fjarám í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Auk þess bloggar hún á belle.is ásamt nokkrum stelpum. María Ósk og Jón Daði eru búsett í Englandi en þau hafa verið kærustupar í sex ár og trúlofuð í eitt ár. Hún er stödd í Rússlandi og fylgist spennt með sínum manni. Hún segist óttast mest að strákarnir meiði sig á vellinum.  

María Ósk kann vel við sig í Moskvu.
María Ósk kann vel við sig í Moskvu.

„Lífið í Rússlandi er gott! Ef ég á að segja eins og er þá kom Rússland mér nokkuð á óvart. Maður var kannski svolítið búinn að mikla þetta land og ferðalagið fyrir sér, en hingað til hefur ferðin verið geggjuð. Moskva er virkilega stór borg en þeir hlutar sem ég hef séð af henni eru bara snyrtilegir og flottir. Hér er mikið um fallegar byggingar og svæði til að skoða svo við höfum bara verið að njóta þess að skoða okkur um í rólegheitum í góða veðrinu, kikja í búðir og borða góðan mat,“ segir María. 

Í dag flýgur hún til Volgograd til að sjá íslenska landsliðið spila á móti Nígeríu. 

„Ég og Ingibjörg tengdamóðir mín erum hérna saman en við tókum ferðapakka frá Vita sem boðið var upp á fyrir aðstandendur leikmanna. Það voru margir sem tóku þennan pakka hjá Vita. Það er frábært að við séum öll samferða hérna. Ég var ekkert sérstaklega farin að hlakka til að fara til Volgograd þar sem við höfum það svo gott hérna í Moskvu. En þegar ég heyrði að við gætum mögulega fengið að hitta strákana þar, þá varð ég töluvert spenntari. Það yrði rosalega gott að fá að hitta Jón Daða smá og eyða aðeins tíma með honum,“ segir hún. 

Hér er María Ósk ásamt stuðningsmönnum íslenska landsliðsins.
Hér er María Ósk ásamt stuðningsmönnum íslenska landsliðsins.

María Ósk segir að stemningin í Moskvu sé ólýsanleg. 

„Stemningin hérna er góð, allir eru rosa afslappaðir og hressir. Það er mikil bjartsýni fyrir keppninni hjá öllum Íslendingum sem ég hef talað við. Það er einnig svaka líf og fjör á Rauða torginu og á helstu túristastöðunum hérna í Moskvu. Þar er margt fólk og stuðningsmenn frá öllum löndum, margir í búningum að að syngja og flippa.“

Hvernig líður þér á leikjum?

„Mér líður yfirleitt nokkuð vel á leikjum og er spennt og bjartsýn. Ég viðurkenni þó að stressið nær oft tökum á manni þegar líður á leikina, sérstaklega ef leikirnir eru jafnir og spennandi. Það sem mér finnst hins vegar erfiðast eru áhyggjurnar yfir því að einhver meiðist. Ég fæ oft alveg hnút í magann ef ég sé leikmann í jörðinni eftir einhver átök – sérstaklega minn mann, þar sem ég veit hvað slæm meiðsli geta tekið mikið á þá. Sem betur fer standa þeir oftast fljótt upp aftur og allt í góðu.“

Ertu með einhvern happagrip?

„Ég er nú ekki með neinn sérstakan happagrip á leikjum og hef aldrei verið með slíkan. En talan 22 hefur alltaf verið happatalan mín, alveg frá því að ég man eftir mér. Jón Daði veit það vel og ég vil meina að það sé ein af ástæðunum fyrir því að hann sóttist eftir því að vera númer 22 með landsliðinu. Talan fer honum alla vega einstaklega vel! Tengdamóðir mín hefur líka stundum mætt með eitthvað bleikt á leiki til lukku,“ segir María. 

Heitir stuðningsmenn.
Heitir stuðningsmenn.

Hvernig leið þér á leiknum gegn Argentínu?

„Ég var mjög bjartsýn fyrir leikinn og trúði því engan veginn að Ísland myndi tapa. Reyndar var ég búin að spá jafntefli fyrir leik svo ég hafði nú bara rétt fyrir mér eftir allt saman. Ég var svaka hress í byrjun leiks en eftir markið hjá Argentínu fór maður að hafa pínu áhyggjur. Það varði þó ekki lengi þar sem strákarnir voru fljótir að bjarga málunum. Stressið fór svo að segja til sín í seinni hálfleik og náði held ég hámarki þegar Argentína fékk vítið. Ég var næstum því búin að missa af þessari snilldarvörslu hjá Hannesi þar sem ég þorði varla að horfa á. Síðustu mínúturnar í leiknum voru líka allt of lengi að líða að mínu mati. Sem betur fer fór þetta allt saman vel. Þetta var ekkert smá flottur leikur hjá strákunum og þeir mega allir vera stoltir af sér. Nú telur maður bara niður í næsta leik.“

Moskva er falleg borg.
Moskva er falleg borg.
María Ósk segir að 22 sé happatalan hennar.
María Ósk segir að 22 sé happatalan hennar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál