Wessman framleiðir sitt eigið kampavín

Róbert Wessman.
Róbert Wessman.

Róbert Wessman forstjóri Alvogen var með sérstaka kynningu í kvöld á Listasafni Reykjavíkur þar sem hann kynnti kampavínið Wessman n. 1 sem hann framleiðir ásamt kærustu sinni, Ksenia Vla­dimirovna Shak­hmanova. Parið framleiðir ekki bara kampavín heldur líka rauðvín og hvítvín. 

Mikið var lagt í þessa 100 manna veislu. Margir erlendir gestir voru boðnir en þó voru nokkrir Íslendingar á svæðinu. Þar á meðal var Einar Bárðarson athafnamaður, Björn Zoega fyrrverandi forstjóri Landspítalans, Sævar Þór Jónsson lögmaður og Árni Harðarson sem er viðskiptafélagi Róberts. 

Smartland hefur heimildir fyrir því að vínið hafi smakkast vel og það hafi verið stemning á mannskapnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál