Rithöfundurinn og listamaðurinn Hallgrímur Helgason og bókaútgefandinn Þorgerður Agla Magnúsdóttir eiga von á barni. Hún er komin 34 vikur á leið.
Þetta er fyrsta barn þeirra saman og frumburður Þorgerðar Öglu en fyrir á Hallgrímur þrjú börn.
Bæði eru þau áberandi í heimi lista og menningar. Þorgerður Agla rekur bókaútgáfuna Angústúra ásamt Maríu Rán Guðjónsdóttur.
Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með óléttuna.