Innsiglar ástina með húðflúri á úlnliðinn

Kærustuparið Chaney Jones og Kanye West í góðu yfirlæti.
Kærustuparið Chaney Jones og Kanye West í góðu yfirlæti. AFP

Fyrirsætan Chaney Jones, kærasta fjöllistamannsins Kanye Wests, innsiglaði ást sína á honum á dögunum með því að láta húðflúra nafn hans á úlnliðinn á sér. 

Jones deildi myndum af sér í sögu á Instagram fyrr í vikunni þar sem sjá mátti glitta í nýja húðflúrið sem virtist vera á vinstri úlnlið hennar. Það er ekki ýkja langt frá því að ástarsamband parsins hófst en það sögur herma að það hafi byrjað að stinga saman nefjum í febrúar síðastliðnum. Fréttamiðillinn People greindi frá.

Parið hefur ferðast til nokkurra staða saman síðustu tvo mánuði og fóru það meðal annars í stutt frí til Japans í síðustu viku þar sem það hnaut um hvort annað.

Jones er ekki sú eina sem hefur innsiglað ástina með húðflúri innan fjölskyldunnar upp á síðkastið heldur geri grínistinn Pete Davidson slíkt hið sama fyrir skömmu. Líkt og frægt er orðið er Davidson núverandi kærasti athafnakonunnar Kim Kardashians, fyrrverandi eiginkonu Kanye Wests. 

Fyrr í þessum mánuði náðust myndir af Davidson með ný flúr en hann er með nafn Kardashians ritað á bringuna ásamt stafaruninni KNSCP, sem flúruð var á háls han. Talið er að runan sé tákn um upphafsstafi nafna Kardashians og barna hennar. 

Kim Kardashian og Kanye West eiga langa og flókna sögu en þau skildu árið 2021. Saman eiga þau börnin fjögur; North, Saint, Chicago og Psalm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál