Hvernig komast menn að framhjáhaldi?

Það kemst ansi oft upp um framhjáhald.
Það kemst ansi oft upp um framhjáhald. mbl.is/Thinkstockphotos

Stundum grunar fólk maka sinn um að halda fram hjá. Það reynist þó stundum erfitt að sanna það. Á vef Cosmopolitan má finna nokkra menn lýsa því hvernig þeir komust að því að maki þeirra væri raunverulega að halda fram hjá. Þó svo að stundum virki að spyrja hreint út virðist sem fólk neiti því oftast að hafa haldið fram hjá. Það er oft sem tæknin kemur upp um fólk, skilaboð kannski send á rangan viðtakanda eða maki sér skilaboð sem hann átti ekki að sjá. 

Hinn 28 ára gamla Adam grunaði fyrrverandi kærustu um að halda fram hjá þar sem hún þurfti allt í einu oft að vinna lengur eða fara út að skemmta sér með vinkonum sínum. Hann gekk hreint til verks og spurði hana. Hún laug en í þriðja skiptið sem hann spurði hana viðurkenndi hún það. 

Charles sem er 29 ára gamall grunaði að ekki væri allt með felldu þegar hann fékk skilaboð sem hann var viss um að hann ætti ekki að fá. Kærastan hafði þá logið að honum og sagt honum að hún væri veik. Seinna skoðaði hann símann hennar og fann fleiri grunsamleg skilaboð. 

Tuttugu og sjö ára gamall maður að nafni Rob komst að framhjáhaldi kærustu sinnar í gegnum vin sinn sem sá hana með ókunnugum manni á bar. Kærastan þrætti fyrir þetta en eftir að Rob sleit sambandinu byrjaði hún að hitta manninn af barnum. 

mbl.is/Thinkstockphotos

Eftir nokkurra mánaða samband fór hinn 26 ára gamli Devin í partý með kærustu sinni. Hann fór niður að ná sér í drykk og kom þá að kærustunni uppi í sófa að kela við annan mann. 

Hinn þrítugi Russell hætti með æskuástinni í kjölfar þess að hún eignaðist nýja vini. Honum fannst hún vera að halda fram hjá og þegar þau hættu saman viðurkenndi hún það. 

Will 27 ára gamall flutti inn með kærustu sinni eftir háskóla. Hann kom heim einn daginn og var kærastan þá að stunda kynlíf með vinnufélaga sínum. Heyrði hann hvað var í gangi áður en hann opnaði hurðina. 

Hinn 28 ára gamli Sam frétti það frá besta vini viðhaldsins að kærastan væri enn að sofa hjá fyrrverandi kærasta sínum. 

Hinum 28 ára gamla Brandon fannst ansi skrítið þegar kærastan fékk skilaboð um miðja nótt frá konu sem var að vinna með henni þar sem hún lýsti löngun sinni til þess að sofa hjá henni. Jen hét hún í símanum og töluðu þær mikið saman. Í ljós kom að Jen var ekki kona heldur var viðhaldið vistað þannig í símanum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál