Geirvörtufullnæging kemur oftast óvænt

mbl.is/Thinkstockphotos

Fullnægingar eru mismunandi eftir fólki. Sumar konur hafa upplifað fullnægingu eftir að geirvörtur voru örvaðar. Women's Health greinir frá upplifun nokkurra kvenna sem deildu sögum sínum á samskiptavefnum Reddit. Fæstar konur hafa fengið fullnægingu á þennan hátt oft og þegar það gerist gerist það mjög óvænt. 

Ein kona lýsir því hvernig hún fékk oft fullnægingu út frá örvun geirvartna þegar hún var ólétt.

Önnur kona segist hafa lent í þessu nokkrum sinnum og þetta komi mönnunum sem hún er með á óvart, núverandi kærasti var þó afar sáttur með sjálfan sig þegar þetta gerðist í fyrsta sinn.

„Ég hélt að þetta væri ekki hægt,“ sagði ein kona sem hefur tvisvar fengið fullnægingu út frá örvun geirvartna. Hún segir það hafa komið jafn mikið á óvart í bæði skiptin. 

Önnur kona segist vera misnæm í geirvörtunum og kennir tíðahringnum um. Stundum þurfi voða lítið til þannig að hún fái það án þess að hún vilji. Hún er þó ekkert of reið vegna þess. 

„Mínar eru mjög næmar og ég fæ það næstum því alltaf þegar ég fæ fullnægingu út frá geirvörtugælum,“ sagði ein ofurnæm. 

Ein kona segist hafa upplifað svona fullnægingu tvisvar og segir þær óalgengar. Þetta hafi komið á óvart. 

mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál