Heldur fram hjá með manni vinkonu sinnar

Konuna langar að flytja inn með nýja elskhuganum.
Konuna langar að flytja inn með nýja elskhuganum. mbl.is/Thinkstockphotos

Konan mín er að halda fram hjá með eiginmanni vinkonu sinnar. Mamma hennar segir að ég ætti ekki að taka því persónulega en ég er miður mín. Ég er 29 ára og eiginkona mín er 27 ára, hinn maðurinn er þrítugur. Hún ætlar að fara að leigja með elskhuga sínum. Hún segist ekki hafa verið hamingjusöm í nokkur ár og það sé aldrei gaman hjá okkur,“ skrifaði áhyggjufullur faðir og eiginmaður og leitaði ráða hjá Deidre, ráðgjafa The Sun

Þetta er erfitt vegna þess að sonum okkar, þriggja og 18 mánaða, finnst erfitt að fara að sofa. Vegna þess sofum við hvort í sínu rúminu. Ég hef leyft þessu að gerast og hef ekki mikið milli handanna til þess að fara út. Ég elska hana enn þá og vil leysa vanda okkar en hún virðist vera með þetta nýja samband á heilanum. Hún hefur misst alla vini sína og ég hef áhyggjur af hvaða áhrif þetta hefur á litlu strákana okkar.“

Ráðgjafinn segir að ástarsamband konu hans hljómi eins og hún sé að flýja eitthvað. Hún telur að tengdamóðir hans hafi einmitt átt við það. 

„Hversu skemmtilegt verður nýja sambandið þegar þau þurfa að takast á við svefnvandamál sona ykkar í ástarhreiðrinu? Segðu eiginkonu þinni að þú munir breyta til ef hún vilji reyna aftur. Það hlýtur að vera þess virði sona ykkar vegna.“

Eiginkona mannsins er komin með elskhuga.
Eiginkona mannsins er komin með elskhuga. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál