Stjörnumerkin sem stunda mesta kynlífið

Hvað segir stjörnumerkið þitt um kynlífið þitt?
Hvað segir stjörnumerkið þitt um kynlífið þitt? mbl.is/Thinkstockphotos

Fólk í stjörnumerki vatnsberans getur verið ánægt með sig þegar kemur að kynlífi. Í könnun sem kynlífsleikfangabúð gerði á kynlífi fólks í öllum 12 stjörnumerkjunum kom í ljós, samkvæmt Popsugar, að vatnsberar stunda mesta kynlífið. 

Nú gæti einhver reynt að halda því fram að magn væri ekki sama og gæði en svo virðist sem að svo sé reyndar, að minnsta kosti í þessari könnun. Vatnsberarnir sem fæddir eru frá 20. janúar til 18. febrúar eru nefnilega það stjörnumerki sem er hve ánægðast með kynlífið sitt. Vatnsberinn er líka líklegastur af öllum stjörnumerkjunum til þess að kaupa svipu. 

Þessi fimm stjörnumerki stunda mesta kynlífið samkvæmt könnuninni:

1. Vatnsberar (20. janú­ar til 18. fe­brú­ar)

2. Naut (20. apríl til 20. maí)

3. Fiskar (19. fe­brú­ar til 20. mars)

4. Meyjur (23. ág­úst til 22. sept­em­ber)

5. Ljón (23. júlí til 22. ág­úst)

Í hvaða stjörnumerki ert þú?
Í hvaða stjörnumerki ert þú? mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál