Framhjáhald þýðir ekki alltaf að sambandinu sé lokið. Mörg pör vissulega hætta saman ef upp kemst um að annar aðilinn hafi haldið fram hjá en svo eru önnur pör sem hafa reynt að gera gott úr málunum og haldið áfram. Fræga og ríka fólkið er þar ekki undanskilið eins og Mirror fór yfir.
Jay-Z og Beyoncé
Heimurinn fylgdist með þegar það fréttist að Jay-Z hafði haldið fram hjá Beyoncé. Tónlistarfólkið komst yfir erfiðleikana meðal annars með því að fara í hjónabandsráðgjöf. Eftir þetta eignuðust þau tvíbura og virðast sjaldan hafa verið sterkari saman.
Bill og Hillary Clinton
Hillary Clinton var forsetafrú Bandaríkjanna þegar upp komst um samband Clintons við Monicu Lewinsky. Hjónabandið hélt engu að síður og stóð Bill þétt við hlið konu sinnar þegar hún sóttist eftir embætti forseta Bandaríkjanna.
Ozzy og Sharon Osbourne
Sharon tók aftur við rokkaranum eftir erfitt tímabil þegar upp komst um framhjáhald rokkarans. Sharon segist hafa fyrirgefið honum og endurnýjuðu þau heitin.
David Letterman og Regina Lasko
Letterman viðurkenndi árið 2009 að hafa haldið fram hjá eiginkonu sinni sem hann hafði aðeins verið giftur í nokkra mánuði. Spjallþáttastjórnandinn sagði að sambandið hefði aldrei verið betra og hann gæti bara kennt sjálfum sér um.
Matthew Broderick og Sarah Jessica Parker
Árið 2008 bárust fréttir af framhjáhaldi Brodericks. Parker var sögð í rusli en hjónabandið hélt og eignuðust þau tvíbura ári seinna.
Fyrrverandi aðstoðarkona Davids Beckham, Rebecca Loos, sagði frá stuttu ástarsambandi sínu við Beckham fyrir meira en tíu árum. Enn eru Beckham-hjónin saman og styðja vel við hvort annað.