Fjórar ferskar munnmakastellingar

Það er skemmtilegt að breyta til.
Það er skemmtilegt að breyta til. mbl.is/Thinkstockphotos

Það liggur beinast við fyrir konur að liggja á bakinu þegar þeim eru veitt munnmök. Hins vegar er ekki bara gott að breyta aðeins til öðru hverju heldur bráðnauðsynlegt. Women's Health fór yfir nokkrar góðar stellingar fyrir konur.

Sitjandi í fötunum

Ef kona er í pilsi eða kjól er tilvalið fyrir hana að setjast á endann á stól og þá getur hinn aðilinn auðveldlega farið niður á hnén og hafist handa við að veita konunni unað. Hvatvísin og nándin gerir þetta mjög æsandi. Kosturinn er auðvitað að þetta er hægt að framkvæma nánast hvar sem er þar sem eru sæti og næði. 

69 á hlið

Í staðinn að vera í hinni hefðbundnu útgáfu af 69 er gott að vera á hliðinni enda hefur sá sem er að veita konu unað meira rými. 

Standandi

Kona stendur yfir félaga sínum sem liggur á bekk. Í þessari stöðu hefur sá aðili sem er veittur unaður tækifæri til þess að dást að líkama hinn aðilans. Konan getur einni hallað sér aðeins fram og leikið við hinn aðilann með höndunum. 

Ofan á

Á meðan annar aðilinn liggur kemur kona sér fyrir ofan á honum á þeim stað þannig að hægt sé að veita henni munnmök. Í stað þess að horfa bara upp í loftið ætti hún að horfa á þann sem er að veita henni unað. Konan getur stjórnað aðeins ferðinni með því að hreyfa mjaðmirnar. 

Það liggur beinast við fyrir konur að liggja á bakinu …
Það liggur beinast við fyrir konur að liggja á bakinu uppi í rúmi þegar þeim eru veitt munnmök. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál