Með 80's-belti í opinberri heimsókn

Melania Trump er greinilega hrifin af beltum þessa dagana.
Melania Trump er greinilega hrifin af beltum þessa dagana. samsett mynd/AFP

Donald Trump er þessa dagana í opinberum heimsóknum um heiminn. Forsetafrúin Melania Trump er með honum í för og skartar hún sínu fínasta pússi. Melania er að sjálfsögðu með nýtt dress fyrir hvert tilefni en það hefur vakið athygli að hún ber belti við öll dressin. 

Þegar forsetahjónin lentu í Sádi-Arabíu var forsetafrúin í svörtum buxum með stórt og mikið gyllt belti. Daginn eftir heimsótti Melania skóla þar sem hún klæddist kjól í hermannastíl og var með stórt brúnt belti við. Þriðja daginn flaug hún síðan til Ísraels þar sem hún klæddist hvítri dragt og enn og aftur var hún með stórt belti á mittinu. 

Melania Trump var með hvítt stórt belti þegar hún kom …
Melania Trump var með hvítt stórt belti þegar hún kom til Ísraels. mbl.is/AFP
Þetta gyllta belti er stórglæsilegt.
Þetta gyllta belti er stórglæsilegt. mbl.is/AFP
Melania Trump skartaði tveimur mismunandi beltum í tveggja daga heimsókn …
Melania Trump skartaði tveimur mismunandi beltum í tveggja daga heimsókn í Sádi-Arabíu. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál