Það var glatt á hjalla og fagurt um að lítast í glæsilegri og formlegri opnun barre stúdíósins Núna Co. Wellness Studio á fimmtudagskvöldið úti á Granda. Gestum var boðið upp á fagrar veigar sem Áslaug Snorradóttir matarlistamaður og ljósmyndari töfraði fram. Á boðstólum voru alls kyns heilsuskot, safar og hollur matur og fyrirtækið Og Natura bauð upp á íslenskt gin með villtum jurtum.
Eigandi stúdíósins er Helga Guðný Theodórs sem lærði barre kennslu í Kaliforníu.
Barre er blanda af pilates, jóga og styrktaræfingum gerðar á dýnu og við ballet stöng. Ávinningar þess að stunda barre er aukinn vöðvastyrkur, aukið jafnvægi og betri líkamleg líðan. Boðið er upp á tíma frá morgni til kvölds alla daga nema sunnudaga en einnig er hægt að leigja stúdíóið út fyrir aðra heilsutengda starfsemi eða viðburði.