Það var margt um manninn á Loft Hostel þegar fataleigan SPJARA tók forskot á HönnunarMars með opnunarhófi síðastliðinn þriðjudag. SPJARA tók þátt í HönnunarMars með pop-up fataleigu og skapandi samhönnunar (e. co-design) vinnustofu. Þar gafst gestum hátíðarinnar tækifæri til þess að leigja sér íslenska hönnun eftir unga og upprennandi hönnuði í blandi við hönnuði sem hafa fest sig í sessi í hönnunar senunni.
SPJARA er fyrsta stafræna fataleiga Íslands sem er sprottin af hugsjón um að leysa hraðtísku (e. fast fashion) af hólmi. Með SPJARA fær fólk aðgang að fjölbreyttri tískuvöru aðgengilegri og sjálfbærari hætti en áður fyrr í stað þess kaupa nýjan fatnað.
Stofnendur SPJARA eru þær Kristín Edda Óskarsdóttir Patricia Anna Þormar og Sigríður Guðjónsdóttir.