Veitingastaðurinn Sæta svínið fagnaði tveggja ára afmæli á dögunum og var boðið upp á matar- og tónlistarveislu í tilefni dagsins.
Emmsjé Gauti og Birnir skemmtu og svo voru Vala og Beggi plötusnúðar þetta kvöld. Kvöldið endaði svo á kareokie með Þórunni Antoníu og Róberti Magnússyni. Og auðvitað fengu allir spádóm hjá Sigríði Klingenberg. Eins og þeir segja þarna á himnum þá er framtíðin björt og ekkert annað í stöðunni en að hækka bara í útvarpinu og reyna að vera svolítið hress.