Í tilefni þess að fyrsti O’Learys-veitingastaðurinn opnaði á Íslandi í Smáralind í byrjun desember síðastliðins var boðið til veglegrar opnunarveislu á staðnum á fimmtudag. Jonas Reinholdsson, eigandi O’Learys-veitingakeðjunnar, opnaði staðinn formlega með því að klippa á borðann fræga, ásamt eigendum í Smáralind.
Á þriðja hundrað gestir mættu á O’Learys og brögðuðu á góðum veitingum og hlýddu á góða tónlist sem þeir Stefán Hilmarsson, Eyjólfur Kristjánsson, Matthías Matthíasson og Hreimur Örn Heimisson fluttu.
„O’Learys á sér einstaka sögu og andrúmsloft sem ég er mjög ánægður að fá að taka þátt í. Það er mjög spennandi að opna staðinn hér í Smáralind og bjóða Íslendingum að njóta þessarar nýju og frábæru upplifunar, sem ég er viss um að þeim muni líka vel,“ sagði Elís Árnason, leyfishafi O’Learys á Íslandi.