Kvikmyndin The Post var frumsýnd í Sambíóunum Kringlunni í gær við góðar viðtökur. Myndinni er leikstýrt af Steven Spielberg og fara Meryl Streep og Tom Hanks með aðalhlutverkin.
Meryl Streep leikur Katherine Graham sem var útgefandi The Washington Post og Tom Hanks leikur Ben Bradlee, aðalritstjóra blaðsins. Myndin fjallar um eitt af stærstu skúbbum bandarískrar fjölmiðlasögu þegar Pentagot-skjölin voru birt 1971.
Það er aðdáunarvert að sjá hvernig Graham stóð í lappirnar með feðraveldið á bakinu sem vildi ekki taka slaginn. Henni var sagt að fyrirtækið gæti farið á hausinn við þessa ákvörðun og þá myndi hún tapa öllu og starfsfólkið myndi missa vinnuna.
Myndin er æsispennandi en hún er líka mikið fyrir augað. Allir búningar og leikmynd er sérlega heillandi en tíska áttuna áratugarins er allt um kring enda gerist myndin 1971. Stór gleraugu, túberað hár, munstraðir kjólar og skyrtur og þröng jakkaföt fá að njóta sín í myndinni.
Ef þú ætlar að gera eitthvað skemmtilegt um helgina þá ættir þú að sjá þessa mynd.