Það var kátt við höfnina þegar veitingastaðurinn RIO Reykjavík opnaði með glæsibrag. Boðið var upp á létt smakk af matseðli staðarins og var smakkinu skolað niður með suðrænum og seiðandi drykkjum.
Staðurinn er suðuramerískur veitingastaður með örlitlu asísku ívafi. Veitingamennirnir Magnús Már Haraldsson, Ásbjörn Jónsson og Fannar Geir Ólafsson reka staðinn ásamt ferðaþjónustufyrirtækinu Eldingu. Yfirkokkur staðarins er Aníta Ösp Ingólfsdóttir og Natascha Fischer er veitingarstjóri.