Hönnunarbúðin Akkúrat opnaði með pompi og prakt á laugardaginn. Búðin er staðsett í húsi Hönnunarmiðstöðvar og selur fyrst og fremst íslenska og norræna hönnun.
Í Akkúrat má finna vörur eftir bæði nýja og þekkta hönnuði en það er hönnunarhúsið Döðlur sem á búðina ásamt Sigrúnu Guðnýju Markúsdóttur. Döðlur sáu einmitt um hönnunina á Akkúrat.