Sigrún Lilja Guðjónsdóttir eigandi Gyðja Collection var í stuði í ársafmæli Maria Nila á Íslandi. Hún var ekki eina skvísan á staðnum því teitið var fullt af glæsipíum og stælgæjum.
Fréderic De Goys og Thomas Barkan komu gagngert frá höfuðstöðum Maria Nila í Stokkhólmi til að fagna þessum tímamótum og sögðu þeir með stolti frá hversu ánægðir þeir eru með að Íslendingar kjósi með hjartanu 100% vegan-vörur.
Maria Nila er framleitt í Stokkhólmi og hefur stimpla frá The Vegan Society, Leaping Bunny og Peta. Hárfagmenn, bloggarar, snapchattarar og blaðamenn voru saman komnir og skemmtu sér vel. Friðrik Ómar og Jógvan stigu á svið og skemmtu gestum við góðar undirtektir.