Pistlar:

13. október 2020 kl. 17:07

Anna Eiríksdóttir (annaeiriks.blog.is)

5 mínútna heimaæfing!

Frábær æfingalota sem einblínir á að styrkja rass- og lærvöðva. Tilvalið er að taka þessa æfingu eftir t.d. góðan göngutúr og ég mæli með að gera hana 3x í viku.

Verum dugleg að hreyfa okkur því það er ekki bara gott fyrir líkamlega heilsu heldur líka þá andlegu. 

Þið finnið fullt af frábærum heimaæfingum á www.annaeiriks.is og ef þið viljið fá aðgang að fjölbreyttu úrvali af hóptímum, kíkið þá á HREYFING HEIMA

30. ágúst 2020 kl. 9:22

5 góð ráð til að æfa heima!

Byrjaðu á því að setja þér markmið og gera plan yfir það hvað þú ætlar þér að hreyfa þig oft á viku. Finndu þér gott æfingaplan til að fylgja eftir heima svo þjálfunin sé markviss og haldi þér við efnið (fullt af frábærum æfingaplönum á síðunni minni annaeiriks.is). Komdu þér upp smá æfingaaðstöðu heima, þarf ekki að vera meira en æfingadýna, eitt par af handlóðum og jafnvel nuddrúlla. Forðastu að meira
4. ágúst 2020 kl. 20:10

Viltu komast aftur í gírinn?

Ef þú ert ein/n af þeim sem ætlaðir að taka vel á því í ræktinni í sumar en gerðir það ekki og ert algjörlega dottin/n úr æfingagírnum þá eru hér fjögur einföld ráð sem hjálpa þér að komast aftur í gírinn.   1. Settu þér markmiðÞessi vísa verður aldrei of oft kveðin. Það skiptir ótrúlega miklu máli að setja sér mælanleg markmið sem stefnt er að ná með markvissum hætti. Einnig er gott að meira
31. mars 2020 kl. 8:56

Mótaðu rass- og lærvöðva!

Frábærar æfingar með miniband teygju sem ég hvet ykkur til þess að prófa heima. Þær styrkja rass- og lærvöðva og einnig er hægt að gera þær án teygju ef þið eigið ekki slíka. Hver æfing er gerð í 45 sekúndur, engin pása fyrr en allar æfingarnar eru búnar, þá er gott að hvíla vel og taka 1-2 umferðir í viðbót! Ég hvet ykkur til þess að hreyfa ykkur á hverjum degi í þessu samkomubanni og ég meira
mynd
16. mars 2020 kl. 23:06

Magnaðar kviðæfingar - FRÍTT!

Við erum að ganga í gegnum afar skrítna tíma svo vægt sé til orða tekið og margir einangraðir heima fyrir. Mig langar til þess að leggja mitt af mörkum og hvetja fólk til að huga vel að heilsunni heima í stofu með því að GEFA lesendum Smartlands æfingaplanið MAGNAÐAR KVIÐÆFINGAR af síðunni minni annaeiriks.is með afsláttarkóðanum: smartland  Það skiptir svo miklu máli meira
10. mars 2020 kl. 20:55

Æfðu heima í sóttkví!

Ég setti saman 10 mínútna æfingamyndband sem hægt er að vinna eftir heima í stofu þar sem margir eru nú í sóttkví. Það er um að gera að huga að heilsunni sinni eftir bestu getu en vera skynsamur og fylgja ráðleggjum landlæknis og halda sig heima fyrir ef maður hefur fengið fyrimæli um það eða treystir sér ekki út meðal fólks og þá er gott að geta fylgt góðu æfingaplani heima í stofu. Þetta meira
5. janúar 2020 kl. 17:01

Árið þitt - 2020!

Gleðilegt ár 2020! Núna er heldur betur tíminn til að koma sér aftur í heilsugírinn eftir hátíðarnar. Margir mikla það aðeins fyrir sér hvar er best að byrja og langaði mig því að deila með þér nokkrum ráðum. Settu þér markmið - þú hefur heyrt þetta áður en þetta hvetur þig áfram og minnkar líkurnar á því að þú gefist upp! Ef þú hefur ekki hreyft þig reglulega í langan tíma þá er nauðsynlegt að meira
14. október 2019 kl. 20:34

Frábærar æfingar fyrir rass og læri!

Þessa æfingalotu er gott að gera þrisvar sinnum í viku, þrjár umferðir í senn til þess að styrkja rass- og lærvöðva. Hver æfing er gerð í 60 sek. Vandaðu þig við að gera æfingarnar eins vel og þú getur frekar en að gera þær of hratt. Byrjaðu strax í dag og þú finnur mun á styrknum í neðri hlutanum eftir nokkrar vikur!   meira
8. september 2019 kl. 19:48

Góðar rassæfingar!

Þessar æfingar styrkja rassvöðvana en frábært er að gera þær þrisvar sinnum í viku, annaðhvort sem stutta æfingu eða eftir göngutúr eða aðra góða hreyfingu. Þær eru einfaldar og krefjast engra áhalda og því hægt að gera hvar sem er.  Hver æfing er framkvæmd í 30 sekúndur og eru allar æfingarnar gerðar á sömu hliðinni áður en allt er gert hinumegin. Gott er að endurtaka æfingalotuna 2-3 meira
25. ágúst 2019 kl. 20:13

Styrktaræfingar fyrir efri hlutann

Styrktaræfingar eru mjög mikilvægar fyrir okkur, þær styrkja vöðvana, eru góðar fyrir beinin, auka grunnbrennslu líkamans og móta líkamann. Þessar æfingar eru frábærar til að styrkja efri hlutann og gott að gera þær 3x í viku með þá lóðaþyngd sem hentar þér. Byrjaðu á einni umferð af æfingunum 3x í viku og reyndu að vinna þig upp í þrjár umferðir, 3x í viku, en mikilvægt er að gefa sér smá tíma meira
12. ágúst 2019 kl. 22:02

Stutt en áhrifarík!

Þessi æfingalota er stutt en áhrifarík! Gerðu hana án þess að hvíla á milli til að styrkja efri hlutann og kjarnavöðvana. Fullkomin eftir göngutúrinn, útihlaupið, hjólatúrinn o.s.frv. Ég mæli með 3-4 umferðum með smá hvíld eftir hverja umferð. Fleiri æfingahugmyndir á www.instagram.com/aeiriks   meira
27. júní 2019 kl. 20:38

Skemmtileg útiæfing

Frábært er að æfa úti á sumrin. Þessi æfing reynir á efri og neðri hlutann en gott er að taka hana eftir útihlaup, hjólatúr eða t.d. góðan göngutúr. Ég mæli með að keyra allar æfingarnar í gegn 2-5 umferðir, fer bara eftir því í hversu miklu stuði þú ert! Njóttu þess að æfa úti í sumar!   meira
28. apríl 2019 kl. 17:31

Í gírinn eftir páskafríi

Vonandi eru allir búnir að hafa það frábært yfir páskana. Eftir svona gott frí er nauðsynlegt að koma sér aftur í gírinn og byrja að hreyfa sig reglulega aftur og taka mataræðið föstum tökum. Þetta myndband gefur þér hugmynd að frábærri HIIT æfingu (High Intensity Interval Training) sem keyrir púlsinn vel upp og myndar góðan eftirbruna. Þú gerir hverja æfingu af fullum krafti í 45 sekúndur, hvílir meira
24. mars 2019 kl. 17:44

Mótaðu rass- og lærvöðva með "miniband" teygju!

"Miniband" teygja er algjör snilld því hún býr til frábæra mótstöðu sem styrkir vöðvana á árangursríkan hátt. Hún er mjög fyrirferðarlítil og því frábær til að taka með sér þegar maður er á ferð og flugi. Í þessu myndbandi gef ég þér nokkrar hugmyndir að æfingum sem mér finnst gaman að gera án þess að hvíla á milli. Hver æfing gerð í 60 sekúndur - 2-3 umferðir!   meira
4. febrúar 2019 kl. 20:01

Æfing fyrir skíðagarpinn

Skíðagarpurinn þarf heldur betur að styrkja rass- og lærvöðva, kjarnavöðva líkamans og þjálfa þolið. Þessi stutta en áhrifaríka æfing vinnur með alla þessa þætti. Hver æfing er unnin i 60 sekúndur og frábært er að gera 3-4 umferðir fyrir hörkugóða æfingu sem ekki bara skíðagarpurinn hefur gott af heldur allir sem vilja huga að heilsu sinni. Fullt af frábærum æfingahugmyndum á instagram.com/aeiriks meira
13. janúar 2019 kl. 13:53

6 snilldar rassæfingar

Í þessu myndbandi sýni ég þér 6 snilldar rassæfingar sem gott er að gera með ökklalóðum (ef þú átt) til að styrkja og móta rassvöðva. Hver æfing er gerð í 60 sekúndur. 6 æfingar sem káraðar eru á sömu hliðinni og svo allt endurtekið hinumegin. Tvær umferðir hvor hlið eða samtals 24 mínútna æfing. Hægt er að gera æfingarnar hvar sem er og mæli ég með að þú prófir strax í dag! Kíktu á meira
mynd
6. janúar 2019 kl. 17:34

Heilsuráð 2019

Settu þér markmið - það hjálpar að halda þér á beinu brautinni. Prófaðu eitthvað nýtt - hvernig væri að stíga út fyrir þægindarrammann og prófa eitthvað nýtt á þessu ári! Finndu hreyfingu sem hentar þér - við ættum öll að hreyfa okkur á hverjum degi og því nauðsynlegt að finna sér hreyfingu sem manni finnst skemmtilegt að stunda, annars gefst maður upp. Finndu þér æfingafélaga eða hóp - meira
11. nóvember 2018 kl. 21:40

Tónaðir handleggir

Ef þig langar að styrkja efri hluta líkamans, prófaðu þá að gera þessar æfingar þrisvar sinnum í viku, 3 umferðir í hvert skipti í nokkrar vikur og finndu muninn!   Ef þig langar að komast í flott form fyrir jól, taktu þá 30 daga áskorun með mér, sjá HÉR. meira
23. október 2018 kl. 16:32

Buttlift

Þetta 10 mínútna myndband einblínir á að styrkja og móta rass- og lærvöðva. Gott er að gera það 3x í viku eftir t.d. góðan göngutúr, hlaup, sund eða skokk. Þú getur sett það í gang og fylgt mér allan tímann þar sem ég útskýri hverja æfingu með tali og geri hana með þér allan tímann. Engin áhöld notuð og því hægt að gera æfingarnar hvar sem er. Prófaðu að æfa með mér strax í dag!   Fullt meira
mynd
10. október 2018 kl. 15:11

Góð ráð til þess að komast í form

Vertu ávallt með markmið - það hjálpar manni að halda sér á beinu brautinni Ekki gleyma litlu sigrunum - mikilvægt er að verðlauna sig á góðan hátt þegar markmiði er náð því það er svo hvetjandi Finndu hreyfingu sem hentar þér - við ættum öll að hreyfa okkur á hverjum degi og því nauðsynlegt að finna sér hreyfingu sem manni finnst skemmtilegt að stunda Margt smátt gerir eitt stórt - æfingarnar meira
26. ágúst 2018 kl. 21:13

Viltu sterka kviðvöðva?

Ef þú vilt styrkja kviðvöðvana þína þá mæli ég með því að þú bætir þessum æfingum við þína hreyfingu 3x í viku. Þær eru krefjandi en frábærar og reyna á svo miklu meira en bara kviðvöðvana. Það munar um allt þegar hreyfing er annars vegar og gott að hafa í huga að margt smátt gerir eitt stórt og því gott að byrja í rólegheitunum og bæta jafnt og þétt fleiri æfingum við þína hreyfingu.   meira
mynd
17. ágúst 2018 kl. 18:04

4 ráð til þess að komast í æfingagír fyrir haustið

1. Settu þér markmiðÞessi vísa verður aldrei of oft kveðin. Það skiptir ótrúlega miklu máli að setja sér mælanleg markmið sem stefnt er að ná með markvissum hætti. Einnig er gott að búta markmiðin niður í smærri sigra og verðlauna fyrir hvert skref að stóra markmiðinu, þannig verður leiðin að því viðráðanlegri og skemmtilegri.2. Finndu æfingafélagaSumir eru mjög sjálfstæðir og agaðir þegar kemur meira
4. júní 2018 kl. 17:48

Fit í sumar

Núna er sumarið loksins komið og margir að fara að detta í sumarfrí. Mikilvægt er að huga vel að heilsunni og halda áfram að hreyfa sig en það er hægt að gera svo mikið af æfingum hvar sem er því æfingar með eigin líkamsþyngd eru frábærar til að halda okkur í góðu formi.  Í þessu myndbandi gef ég ykkur hugmynd að stuttri æfingu sem hægt er að gera úti á palli, við sundlaugarbakkann, í meira
14. maí 2018 kl. 16:18

9 vikna hlaupaáætlun

Sumarið er framundan og margir spenntir fyrir því að hreyfa sig meira úti. Hlaup eru frábær hreyfing sem hægt er að stunda hvar sem er en mörgum finnst erfitt að byrja. Ég setti saman 9 vikna hlaupaáætlun sem hjálpar þér vonandi að komast upp úr sófanum og með tímanum að geta hlaupið 5 km samfleytt.   Mikilvægt er að fylgja æfingaplaninu og hafa í huga að góðir hlutir gerast hægt, byrjaðu á meira
22. apríl 2018 kl. 22:14

Viltu fá kúlurass?

Ef þú vilt fá kúlurass þá skaltu skoða þetta myndband og bæta þessum æfingum inn í þína rútínu annan hvern dag. Þær virka einstaklega vel til þesss að móta rassvöðvana og styrkja lærvöðvana. Þær gefa þér hugmynd að æfingum sem þú getur gert heima hjá þér eða bara hvar sem er og þú finnur þær í nýjasta æfingaplaninu mínu Fit21 - í form á 21 mínútu sem ég setti saman fyrir þá sem vilja ekki eyða of meira
26. mars 2018 kl. 20:48

Fjórar hörkugóðar æfingar

Í þessu myndbandi sýni ég fjórar hörkugóðar æfingar sem eru frekar krefjandi en gætu verið skemmtileg viðbót í æfingaplanið þitt. Gerðu hverja æfingu í 45 sekúndur á eins góðum hraða og þú getur, þú metur það svo hvort þú farir strax í næstu æfingu eða takir þér smá pásu á milli. Frábært er að gera æfingarnar eina umferð en flott alveg upp í fjórar ef þú getur, ef þú vilt eignast hörkugóða æfingu meira
14. mars 2018 kl. 9:06

Stinnur og sterkur líkami

Það eru ótal ávinningar af því að gera styrktaræfingar en má þar nefna t.d aukinn efnaskiptahraða, bætta líkamsstöðu, aukna orku, minni vöðvarýrnun, minni meiðslahættu, minni líkur á beinþynningu og lengi mætti telja. Í þessu myndbandi sýni ég fimm góðar æfingar sem styrkja allan líkamann en frábært er að gera tuttugu endurtekningar af hverri æfingu, þrjár til fjórar umferðir. Það er í góðu lagi meira
mynd
4. mars 2018 kl. 19:40

Sterkur kjarni

Sterkur kjarni skiptir ótrúlega miklu máli í allri þjálfun og í daglega lífinu. Þetta eru vöðvar í kringum spjaldhrygg, neðra bak, mjaðmir og kvið og hjálpa þessi vöðvar okkur við að halda góðri líkamsstöðu og má segja að grunnurinn að allri þjálfun sé sterkur kjarni. Veikleiki í þessum vöðvum lýsir sér oft í bakverkjum og getur leitt til lélegrar líkamsstöðu. Til þess að sporna gegn þessu er meira
25. febrúar 2018 kl. 16:13

Fjórar æfingar til að fá stinn læri

Í þessu myndbandi sýni ég þér fjórar æfingar sem styrkja vel rass- og lærvöðva. Frábært er að gera tuttugu endurtekningar af hverri æfingu, fjórar umferðir í heildina. Ef þú gerir þetta þrisvar sinnum í viku þá muntu finna mun á þér eftir nokkrar vikur. Gott er að byrja smátt og bæta svo fleiri æfingum við eða bæta þessum æfingum við núverandi æfingar þínar. Kíktu endilega á síðuna mína meira
14. febrúar 2018 kl. 19:10

Uppáhalds "boutique" stöðvarnar mínar í New Yor

New York er ein af uppáhalds borgunum mínum og fer ég þangað nánast árlega til þess að viða að mér þekkingu og nýjum hugmyndum. Ég á nokkrar uppáhalds "boutique" stöðvar þar sem eru litlar stöðvar sem bjóða bara upp á eitthvað ákveðið en ekki hefðbundnar stöðvar sem hafa tækjasal og bjóða upp á kannski fullt af opnum tímum. Þessar stöðvar eru allar litlar og oft bara með einn sal og hægt að kaupa meira
4. febrúar 2018 kl. 20:17

Dúndur eftirbruni

Margir eru mikið á ferð og flugi, vinna jafnvel óreglulega, ferðast mikið vegna vinnu eða bara sér til skemmtunar. Þrátt fyrir mikil ferðalög og óreglulega rútínu þá er afar mikilvægt að hugsa vel um heilsuna og finna sér stað og stund til þess að æfa. Það er ekki bara gott fyrir líkamlega heilsu heldur einnig andlega því manni líður svo ótrúlega vel eftir að hafa tekið smá æfingu. Æfingarnar meira
28. janúar 2018 kl. 10:06

Stinnir rassvöðvar og sterk miðja

Þetta myndband gefur þér hugmynd að góðum æfingum sem hjálpa þér að styrkja rass- og kviðvöðva. Hver æfing er gerð eins oft og þú getur í 30 sekúndur og næsta æfing er gerð í beinu framhaldi án þess að hvíla á milli. Frábært er að gera lágmark tvær umferðir hvora hlið eða samtals fjórar umferðir en velkomið er að gera meira. Það þarf ekki alltaf að gera mikið til þess að æfingin skipti sköpum meira
mynd
23. janúar 2018 kl. 18:09

Fimm hugmyndir að millimáli

Margir vandræðast aðeins með það hvað þeir eigi að fá sér milli mála sem er ekki of hitaeiningaríkt og hjálpar manni við að halda góðu jafnvægi á blóðsykrinum. Hérna eru nokkrar hugmyndir að léttu en góðu millimáli sem gott er að grípa í milli stóru máltíðanna sem eru morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.  Fimm hugmyndir að millimáli Flatkaka með hummus og papriku Tvö Finn Crisp meira
23. janúar 2018 kl. 18:07

Fimm magnaðar kviðæfingar

Flestir landsmenn eru í miklum heilsugír núna eftir jólin sem mér finnst afar jákvætt því við ættum alltaf að hugsa vel um heilsu okkar. Til þess að hjálpa fólki að halda sér í góðum gír þá ætla að ég að gefa reglulega hugmyndir að æfingum sem hægt er að gera hvar sem er, nota til að koma sér í gang eða bæta við sína æfingarútínu. Það er hægt að gera æfingarnar heima í stofu, fríinu, ræktinni eða meira
Anna Eiríksdóttir

Anna Eiríksdóttir

Deildarstjóri í Hreyfingu. Íþróttakennari, einkaþjálfari og eigandi annaeiriks.is sem er vefur fyrir konur sem býður uppá metnaðarfulla fjarþjálfun, uppskriftir, blogg o.fl. Meira