Aðalbjörg Kara Kristjánsdóttir meistaranemi í matvælaörverufræði og Gunnar Már Pétursson húsgagnasmiður búa í Danmörku. Þau keyptu gamlan sirkusvagn í Danmörku sem þau eru smám saman að innrétta. Draumurinn er að búa í vagninum sem flokkast sem smáhýsi.
Kara og Gunnsi, eins og parið er kallað, fluttu til Danmerkur árið 2016 til þess að fara í nám en þau langaði að prófa að búa í öðru landi en Íslandi. „Okkur fannst mikilvægt að fá menntun án þess að safna upp háum skuldum þannig að Danmörk varð fyrir valinu þar sem maður getur fengið styrk frá ríkinu til að lifa meðan maður er í námi ef maður vinnur smá með skóla,“ segja þau.
Svokölluð smáhýsi (e. Tiny House) er samkvæmt skilgreiningu allt að 37 fermetra stór hús. Gunnsi og Kara búa eins og er í lítilli íbúð í Kaupmannahöfn sem passar í rauninni inn í skilgreininguna þar sem aðeins eru 24 fermetrar af nothæfu gólfplássi í íbúðinni. Smáhýsi er þó öðruvísi í eðli sínu en litlar íbúðir að sögn Köru og Gunna.
„Oft eru smáhýsi á hjólum svo að hægt sé að flytja þau á milli staða. Þá eru þau oftast minni en 37 fermetrar því þau þurfa að uppfylla sérstakar reglur til at geta keyrt á vegum. Okkar smáhýsi er gamall sirkusvagn frá sirkus Arena og var eldhús fyrir sirkusinn. Vagninn er á hjólum og uppfyllir kröfur til að geta keyrt á vegum með flutningabíl eða traktor eða gerði það allavega þegar við keyptum hann. Fyrir okkur var mikilvægt að geta flutt húsið frá A til B,“ segja þau. Þrátt fyrir að vilja hafa þann möguleika að geta skipt um staðsetningu hugsa þau um smáhýsið sem kyrrstætt hús til að búa í. Húsið býr þó yfir þeim kosti að þau geta flutt það með sér ef þau vilja flytja til Íslands eða eitthvert annað.
Hvað fannst fjölskyldu og vinum um að þið ætluðuð að flytja í smáhýsi?
„Foreldrar og vinir eru vön því að við gerum undarlega hluti þannig að það kom þeim svo sem ekki það mikið á óvart. Flestir voru mjög spenntir fyrir verkefninu og þeir sem voru skeptískir til at byrja með hafa algjörlega hoppað með á vagninn eftir að hafa séð hversu vel þetta hefur gengið hjá okkur.“
Það voru margar ástæður fyrir því að smáhýsi heilluðu Gunnsa og Köru. Umhverfissjónarmið og þörf fyrir að vera nær náttúrunni spiluðu stóran þátt. Einnig langaði þau að læra nýja hluti eins og að smíða en þegar þau keyptu vagninn var Gunnar ekki byrjaður í námi í húsgagnasmíði.
„Við viljum geta lifað þannig að við þurfum ekki á háum tekjum að halda til þess að halda okkur á floti. Við viljum ekki vera háð því að þurfa að vinna 100 prósent vinnu til þess eins að geta haft þak yfir höfuðið. Draumurinn væri að geta haft aðra forgangsröðun á lífinu og vinna minna og geta notað frítímann í allt hitt sem lífið hefur að bjóða. Okkur langar að rækta eigið grænmeti og geta sinnt okkar óteljandi áhugamálum almennilega. Okkur langar líka helst að búa með öðrum sem eru á sama plani og við. Það að búa í smáhýsi er fullkomið til að deila svæði á milli fleira fólks þar sem að maður hefur sitt eigið svæði en getur svo deilt sameiginlega svæðinu með hinum.“
Eru svona hús algeng erlendis?
„Það er kannski ekki hægt að segja að þau séu algeng en þau finnast alveg. Húsbátar eru þá kannski algengari í Kaupmannahöfn en það eru allskonar „tiny house“ samfélög annarsstaðar í Danmörku. Hvað varðar önnur Norðurlönd þá þekkjum við það ekki svo vel. Við vitum að þetta er mjög vinsælt í Bandaríkjunum og Kanada þar sem fólk vill losna undan himinháum skuldum. Það er allavega mest áberandi á Youtube og svona. Þetta er þó að verða vinsælla og vinsælla og reglugerðir eru að breytast aftur og aftur til að leyfa svona híbýli út um allt þar sem reglugerðir leyfðu þetta ekki áður fyrr.“
Gunnsi og Kara fundu vagninn á sölusíðunni DBA sem þau segja vera danska útgáfu af bland.is sem Íslendingar þekkja vel. „Sirkus Arena var að selja alla vagnana sína sem höfðu áður verið notaðir á túrum um Evrópu. Okkar var til dæmis eldhúsvagn fyrir sirkusinn og er 17 fermetra vagn frá sirka 1970. Þar sem hann er gamall þurfti að gera ansi mikið til að gera hann upp. Við þurftum að rífa allt út, veggi, einangrun og meira að segja nokkra stoðbita þar sem þeir voru of skemmdir eftir vatnsskaða. Við höfum eytt miklum tíma í að setja nýja glugga, hurð, laga veggi, einangra og alls konar fleira. Gunnsi smíðaði svo eldhús innréttinguna, eldhúsborðið, gestarúmmið og flest annað inn í vagninn.
Hvernig er að innrétta svona lítið hús?
„Það er eiginlega auðveldara en maður heldur. Það er frábært að geta hannað allt eftir sínu höfði. Við vorum til dæmis orðin mjög þreytt á pínulitlum eldhúsum með engu borðplássi í þeim stúdentaíbúðum sem við höfum búið í. Við gátum þarna ákveðið sjálf að hafa stórt eldhús miðað við restina af vagninum. Það var líka mikilvægt að geta haft gesti. Við höfum tekið á móti ótalmörgum ferðalöngum frá „couchsurfing“ og álíka vefsíðum og okkur fannst að það yrði að vera hægt að fá fjölskyldu og vini í heimsókn. Við gátum þá hannað okkar eigin leið til að gera það smart svo að það tæki ekki of mikið pláss.
Þar sem vagninn er ennþá í vinnslu höfum við ekki prófað að búa í honum og koma öllu fyrir en við höfum gert ráð fyrir miklu geymsluplássi. Við myndum örugglega þurfa að losa okkur við eitthvað af húsgögnunum sem við erum núna með í íbúðinni okkar í Kaupmannahöfn en sem betur fer er það allt saman eitthvað sem annað fólk hefur hent og við fundið. Ef við höfum keypt eða smíðað húsgögn að þá höfum við gert ráð fyrir þeim í vagninum. Við höfum alltaf verið frekar sammála um hvernig við viljum hafa hönnunina á vagninum þannig að það ferli hefur gengið frekar smurt fyrir sig.“
Hvernig líður ykkur í smáhýsinu þegar þið dveljið þar?
„Ég get eiginlega ekki lýst því hvað mér finnst það geggjað að vera í sirkusvagninum. Ég myndi í alvörunni vilja búa þar en það er erfiðara en að segja það að finna stað nógu nálægt Kaupmannahöfn til at geta búið þar. Núna á meðan ég er í námi verður það allavega að bíða og svo sjáum við hvað við gerum. Maður er svo nálægt náttúrunni með því að vera í svona litlu rými. Það er algjörlega meiri ró! Bæði innra með mér og úti. Mér líður oft eins og fugl í búri þegar við erum í íbúðinni okkar í Kaupmannahöfn þar sem það er svo langt í náttúru og ró,“ segir Kara.
Fái þið ekkert nóg af hvort öðru í svona fáum fermetrum?
„Nei alls ekki. Við höfum verið bestu vinir frá því löngu áður en við byrjuðum saman og elskum að eyða tíma saman. Við tengjumst hvort öðru þegar við erum að vinna að einhverju verkefni saman. Sirkusvagnsverkefnið er algjörlega dæmi um fullkomna leið til að tengjast.“
Hvað finnst ykkur um stór einbýlishús?
„Stór einbýlishús eru alla vega ekki eitthvað sem að okkur dreymir um nema þá að við myndum deila því með öðrum. Vinkona okkar hér í Danmörku býr til dæmis á bóndabæ með allavega átta öðrum og þar myndum við vilja búa. Þar er hún með mongólska Yurt, annar í smáhýsi og tveir að smíða eigið smáhýsi frá grunni. Húsið sjálft er stórt og þau skipta herbergjunum bara á milli sín og deila svo sameiginlegu rými eins og eldhúsi, baðherbergi og stofu.“