Vinsælasta hönnunin árið 2020

Rakel Hafberg arkitekt.
Rakel Hafberg arkitekt.

Rakel Hafberg arkitekt hjá Berg hönnun segir að pastellitir séu mjög vinsælir um þessar mundir því þeir færa sumarið inn á heimili landsmanna. 

Forstofan skiptir máli

„Forstofan hefur fengið aukna athygli og er áhersla lögð á notagildi hennar og þægindi. Forstofurýmið er það fyrsta sem tekur á móti fólki þegar það kemur heim til sín og því mikilvægt að hafa það fallegt. Speglar, snagar og bekkir njóta sín vel í forstofum sem og vel valdir litir. Fallegar viðarhillur eru vinsælar í dag, þær skapa hlýju og meiri dýpt inni í rýminu.

Forstofan er það fyrsta sem fólk sér þegar það kemur …
Forstofan er það fyrsta sem fólk sér þegar það kemur inn á heimilið. mbl.is/skjáskot Pinterest

Flísar með marmaraáferð

Flísar með marmaraáferð á veggi og gólf eru enn ráðandi í eldhúsinu og baðherberginu. Baðvaskar eru sérsniðnir í sama stein og borðplatan, sem myndar fallega heild. Fólk er að verða djarfara í litavali á baðherbergin en það getur verið skemmtileg lausn að nota Terrazzo-flísar á gólf og upp hluta af veggjum. Það eru til svo ótalmargir flottir litatónar í þessum flísum og æðislega fallegt að mála vegginn í fallegum lit sem tónar við flísarnar. Terrazzo sést einnig í meira mæli sem borðplötur í eldhúsum landsmanna.

Flísar með marmaraáferð eru vinsælar núna.
Flísar með marmaraáferð eru vinsælar núna. mbl.is/skjáskot Pinterest
Terrazzo-flísar á gólf og upp hluta af veggjum er vinsælt …
Terrazzo-flísar á gólf og upp hluta af veggjum er vinsælt í dag. mbl.is/skjáskot Pinterest

Friðsæl svefnherbergi

Svefnherbergið er jafnan hugsað sem griðastaður. Þar sem hraðinn í þjóðfélaginu er mikill er mikilvægt að huga vel að þessu rými og leggja áherslu á að gera það notalegt og friðsælt.

Í dag er vinsælt að hafa veggi í svefnherbergjunum í frekar djúpum og róandi jarðlitum og velja sama lit á loftið. Vegglistar eru gjarnan notaðir til að skapa dýpt og ramma jafnvel rúmið inn. Vinsælt er að láta gardínur ná upp í loft og niður í gólf. Margir horfa til fegurðar á huggulegum hótelherbergjum og nýta sér hugmyndir þaðan til að skapa rétta andrúmsloftið.

Friðsæl svefnherbergi eru vinsæl á þessu ári.
Friðsæl svefnherbergi eru vinsæl á þessu ári. mbl.is/skjáskot Pinterest

Grænt og vænt

Plöntur halda áfram að vera vinsælar enda er hugsunin um náttúruna ofarlega í huga landsmanna. Huga þarf að plöntum en í staðinn auka þær loftgæði heimilisins og gleðja augað. Þeir sem eru ekki með græna fingur geta keypt sér þurrkuð blóm eða gerviplöntur til að ná fram þessu umhverfi náttúrunnar heima. Úrvalið af þurrkuðum stráum hefur aldrei verið meira og er einstaklega vinsælt að skipta út litatónum eftir árstíðum. Þá eru bjartari vendir eða strá höfð yfir sumarmánuðina og haustlitirnir dregnir fram þegar daginn tekur að stytta.

Það er vænt að vera með eitthvað grænt heima.
Það er vænt að vera með eitthvað grænt heima. mbl.is/skjáskot Pinterest

Litir og áferð

Djúpir jarðtónar halda áfram að vera vinsælir á þessu ári. Þeir litir eru sérstkaklega notalegir á haustin þegar fólk fer að kveikja á kertum og vefja sig inn í teppi og lesa góða bók. Ég mæli með að skoða spartlmálninguna KC-14 sem gerir svo skemmtilega áferð og dýpt á veggina. Pasteltónar koma einnig sterkir inn á þessu ári, enda hleypa þeir sumrinu inn á heimilið. Pastellitir eru að ná inn í eldhúsin, baðherbergin sem og barna- og unglingaherbergin.

Fólk ætti ekki að hræðast það að mála í litum, enda alltaf hægt að mála bara yfir í nýjum tónum.“

Fallegir litir á veggjunum gera heimilið bjart og skemmtilegt.
Fallegir litir á veggjunum gera heimilið bjart og skemmtilegt. mbl.is/skjáskot Pinterest
Nú er vinsælt að vera með eldhúsinnréttingar í pastel litum.
Nú er vinsælt að vera með eldhúsinnréttingar í pastel litum. mbl.is/skjáskot Pinterest
Einfalt og stílhreint inn á heimilið.
Einfalt og stílhreint inn á heimilið. mbl.is/skjáskot Pinterest
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál