„Ég fékk nóg af draslinu“

Gunna Stella fékk nóg af draslinu 2015.
Gunna Stella fékk nóg af draslinu 2015.

„Þegar ég var ófrísk af fjórða barninu (árið 2015) fékk ég nóg af magni hluta á heimilinu okkar. Ég hreinlega hringsnerist í kringum sjálfa mig. Við eigum heima í stóru húsi á tveimur hæðum og einhverra hluta vegna var þetta hús yfirfullt af dóti, leikföngum, húsgögnum, þvotti, þvotti og þvotti og öllu því sem „á“ að fylgja stórri fjölskyldu. Mér fannst ég ekki gera neitt annað við tímann minn en vinna og laga til,“ segir Gunna Stella í sínum fyrsta pistli á Smartlandi:  

Árum saman var ég búin að leita að hinni fullkomnu leið til að skipuleggja. Skipuleggja fataskápana, skipuleggja þvottahúsið, skipuleggja eldhússkápana og svo má lengi telja. Ég var búin að eiga margar gerðir af kommóðum og geymsluhirslum en mér fannst þetta ekkert breytast.

Árið 2015 fékk ég nóg. Það hlaut að vera einhver önnur leið. Ég gerði það sem nútímaskynslóð gerir gjarnan og fór á netið að leita leiða til að Einfalda lífið. Mér til mikillar ánægju fann ég ýmsar lausnir. Sú fyrsta sem ég rakst á var Marie Kondo sem er einmitt mjög þekkt hér á landi í dag fyrir Netflix-þætti sína.

Ég hlustaði á bókina hennar og byrjaði að fara eftir ýmsu sem hún kenndi. Sumt af því reyndist mér vel en ég áttaði mig þó fljótlega á því að hennar aðferðir við skipulagningu voru ekki endilega lausnin við vandamáli mínu. Ég þurfti ekki nýja leið til að skipuleggja eða koma hlutum fyrir. Ég hélt því áfram að nýta mér tæknina og fann frábærar leiðir til þess að Einfalda lífið. Ég las bækur og hlustaði á hlaðvörp eftir einstaklinga sem höfðu verið á sömu vegferð og ég. Einstaklinga sem upplifðu að heimilið væri yfirþyrmandi og ekki sá griðarstaður sem það ætti að vera. Þessir einstaklingar eiga það allir sameiginlegt að hafa fengið nóg af magni hluta og kaupæði og það var einmitt það sem ég var að leita að. Ég fór markvisst í gegnum heimilið okkar og minnkaði magn hluta, seldi, gaf á Nytjamarkaði o.s.frv. Ég fór að gera mér grein fyrir því að það var mun einfaldara að sinna því sem þurfti að sinna á stóru heimili ef það var minna af húsgögnum, minna af skrautmunum, minna af eldhúsdóti, minna af fatnaði og svo má lengi telja. Þessi vegferð okkar er ekki búin en við erum komin langa leið.

Í dag starfa ég sem heilsumarkþjálfi, kennari og fyrirlesari og ég finn að svo margir upplifa heimilið sitt sem streituvald. Ég mæli því alltaf með því að markþegar mínir taki einföld skref í átt að Einfaldara lífi. Nú nýlega bjó ég til skjal TÍU TÍU (tíu skref í átt að einfaldara lífi) sem er útprentanlegt á PDF formi. Þú getur nálgast þetta skjal ókeypis hér!

Einfaldara líf er á allan hátt mun betra líf. Svarið við hraðanum og óreiðunni er ekki að endurskipuleggja dagatalið eða endurraða í skápana. Svarið er að láta það sem mestu máli skiptir í lífinu hafa forgang en fjarlægja úr lífi okkar það sem vinnur gegn því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál