Dýrasta húsið í Kópavogi?

Við Kleifakór í Kópavogi stendur 357 fm einbýli sem teiknað var af Sigurði Hallgrímssyni. Húsið er hið glæsilegasta en ásett verð er 169 milljónir. 

Í húsinu er allt sem hugurinn girnist. Stórt og mikið fataherbergi er í hjónaberbergi, vandað og flott eldhús með hvítri sprautulakkaðri innréttingu, góð lofthæð og stórir gluggar. Hér ætti enginn að fá innilokunarkennd. 

Baðherbergin eru líka vel heppnuð með sérsmíðuðum innréttingum og mörgum speglum. Eins og sést á myndunum er innbúið sérlega fallegt og skemmtilegt og ekki eins og heima hjá öllum öðrum. 

Af fasteignavef mbl.is: Kleifakór 19

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál