Inga Bryndís Jónsdóttir eigandi Magnolia og eiginmaður hennar hafa sett sitt fallega einbýli við Bergsstaðastræti á sölu.
Húsið er 290 fm að stærð en það var byggt 1933. Hjónin eru búin að endurnýja húsið mikið á sinn smekklega hátt.
Stíllinn hennar Ingu Bryndísar skín í gegn en þar má sjá gráa veggi, gróf viðargólf, svartar og hvítar gólfflísar ásamt hvítum gólflistum.