Svona býr Mandy Moore

Mandy Moore er búin að koma sér vel fyrir í …
Mandy Moore er búin að koma sér vel fyrir í nýja húsinu í Los Angeles. AFP

Mandy Moore er búin að gera upp hús sitt í Los Angeles sem hún keypti með unnusta sínum Taylor Goldsmith. Hún opnaði dyrnar að nýuppgerðu heimili sínu fyrir Architectural Digest.

Áður en hún flutti í nýja húsið hafði hún búið í sama húsinu í 15 ár en það hús keypti hún 18 ára eftir að hafa leikið í fyrsta skipti aðalhlutverk í bíómynd. Nýja húsið markar nýjan kafla í lífi This is Us-stjörnunnar að hennar mati en þar ætlar hún að búa sem fullorðin kona. 

Moore fékk  fagfólk með sér í lið þegar kom að því að gera upp húsið og sá innanhúshönnuðurinn Sarah Sherman Samuel um að gera húsið að því heimili sem það er í dag. Húsið er búið einstaklega fallegum húsgögnum og minnir margt á sjötta áratug síðustu aldar en húsið var einmitt byggt þá. 

Fleiri myndir má sjá í greininni á vef Architectural Digest






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál