Dökkgráir veggir, flotuð gólf og heimilisleg húsgögn einkenna 183 fm íbúð við Mánatún í Reykjavík. Persónulegur stíll fær að njóta sín og er íbúðin ekki eins og hjá öllum öðrum.
Eldhúsið er opið inn í stofu og borðstofu og er gömlum antik-húsgögnum blandað við nýrri húsgögn á heillandi hátt. Tekk-húsgögn passa prýðilega við flotuðu gólfin, chesterfield-sófa og fleira í þeim dúr.
Úr íbúðinni er svo massaflott útsýni yfir Reykjavík.